28 febrúar 2006
Reiðhöll á Gaddstaðaflatir

Góða kvöldið.
Byrja á að kynna könnunina um lágvöruverðverslun á Hellu.
Endilega takið þátt.
Var í kvöld á aðalfundi Hestamannafélagsins Geysis. Því miður örfáir mættir í 500 manna félagsskap. En svona er nú félagsstarf nú orðið, allt of lítil mæting í starfið og fundi. Góður fundur þar sem meðal annars var samþykkt að sækja um í reiðhallarsjóð Landbúnaðarráðherra. Vonandi tekst að ná þar sem mestu fjármagni með því að allir snúi bökum saman um að ná árangri. Rangárbakkar, hmf Geysir og sveitarfélög á svæðinu eiga að leggjast saman á árarnar um að fá hámarks framlag frá ríkinu og leggja síðan annað eins á móti. Síðan á að kanna í þaula hvort hægt sé að laða að fjárfesta til að leggja fram verulegt fjármagn til uppbyggingarinnar. Líklegt er að það geti heppnast ef vel tekst upp við að ná saman stuðningi ríkis og sveitarfélaga.
OKKAR sveitarfélag, Rangárþing ytra á þarna að leiða hópinn því hér eru mestir hagsmunir að vel megi takast. Inn í þann stuðning getur komið margt annað en einungis fjárhagsleg aðkoma. Þar má nefna að leggja til land, nota aðliggjandi lóðir sem agn fyrir fjárfesta ásamt því að veita ómældan móralskan stuðning.
Um þetta þurfum við að standa vel saman og þá munum við sjá stór tækifæri opnast á svæðinu.
Meira um það síðar.
Sæl að sinni,
Viðar.
26 febrúar 2006
Sunnudagur fyrir sálina.
Komið þið sæl.
Hvað er meira viðeigandi en að velta fyrir sér kjarna lífsins, spurningum og svörum mennskuna, á sunnudagskvöldi.
Var að horfa á þáttinn sjálfstætt fólk á stöð tvö áðan sem fjallaði um mannúðarstarf Njarðar P Njarðvík í Afiríku. Í hvert sinn sem maður sér þætti sem þennan, sem opnar glugga inn í veröld sem er okkur hér á vesturlöndum algjörlega framandi,fær maður sektartilfinningu. Þarna snýst lífið um frumþarfirnar að hafa í sig og á og ekkert umfram það. Og tölfræðin er rifjuð upp fyrir okkur, 2/3 mannkyns eiga verla til hnífs og skeiðar og þar af býr 1 af hverjum 10 við algera örbirgð og í mörgum tilfellum stríðsástand í ofanálag. Frammi fyrir þessum staðreyndum verður manni litið niður með eigin nefi og verður hugsað til þess hyldýpis sem er á milli þeirrar ofgnóttar og óhófs sem hér tíðkast og þess sem stór hluti mannkyns upplifir.
OG- þrátt fyrir það að margt gott sé gert til að brúa þetta bil, af smáum aðilum eins og Nirði P Njarðvík og einnig stórum hjálparstofnunum og ríkisstjórnum, þá er staðreyndin samt sú að bilið milli snauðra og ríkra í veröldinni er sífellt að breikka.
EN hvers vegna, hvað veldur og hvað er til ráða.
Þegar spurningarnar eru stórar þá verður oft lítið um svör eins og alkunna er. En við verðum samt að reyna hvert og eitt að koma með okkar tillögu að svari og lausn.
En við leitina að svarinu skulum við varast að reyna að finna upp einhvert sannleikshjól, eitthvað alsherjar elexsír sem öllu bjargar.
Mannkynið á nefnilega svörin til, það þarf bara að tína þau saman og raða uppá nýtt. Eða er ekki í öllum helstu trúarbrögðum og siðferðiskenningum heimsins kærleiksboðskap að finna sem væri vel nothæfur sem vegvísir að betri heimi ef mannkynið færi eftir honum?
Mín tillaga er því sú að stofnað verði vitringaráð á vegum SÞ sem fegi það hlutverk að búa til nýja samræmda "ritningu" úr því besta úr trúarboðskap og siðferðiskenningum heimsins. Er ekki kominn tími til að aðlaga helstu gildi siðmenningar að nútímanum þegar fyrir liggur að það sem við höfum dugar okkur ekki.
Annars er ég hræddur um að mannkynið verði áfram að glíma við afleiðingarnar af því þegar synir Abrahams þeir Ishmael and Isaac fóru hvor sína leiðina fyrir þúsundum ára og urðu forfeður Araba og Gyðinga.
Er það t.d. ekki í raun sá atburður sem er frumorsök ástandsins í suðupotti miðusturlanda nú?
Lifið heil,

24 febrúar 2006
Tollfrelsi
Komið þið sæl.
Í dag bárust gleðilegar fréttir úr Utanríkis og landbúnaðarráðuneyti varðandi tollfrelsis samninga við ESB á grundvelli EES samningsins.(Mikill snillingur er Jón Baldvin að koma þessum samningi í gegn á sínum tíma, samningurinn hefur verið undirstaða velgengni í efnahagsmálum Íslendinga síðan og er enn.)
Nú fá þeir félagar Guðni og Geir prik frá mér fyrir góða frammistöðu við að nýta möguleika EES samningsins og á þessu sést að sá umdeildi samningur er nokkurs virði enn í dag þrátt fyrir ýmis orð um annað.
Þessir nýju möguleikar eiga eftir að verða landbúnaðinum dýrmætir og nú er að bretta upp ermar og nýta þá sem best. Sala hrossa til Evrópu á eftir að taka kipp við þetta á næstu árum og leiða til mikillar gullaldar hjá hrossaræktendum ef rétt er á spöðum haldið. Þetta verður viðbót við þá miklu grósku sem verið hefur í greininni hér innanlands undanfarin ár.
Og úr því ég er að tala um hestamennsku þá tek ég ofan hatt minn fyrir VIS keppninni. Þarna er kominn fyrsti vísir að keppnisformi sem á eftir að eflast og þróast á næstu árum og auka veg hestamennskunnar á allan hátt og auka fjölmiðla umfjöllun um hana.
Sæl að sinni Viðar.
ES. Halló er einhver að lesa, ef svo gefið "comment"

22 febrúar 2006
Fundur um framboðsmál.
Góða kvöldið.
Var að koma af Oddaverjafundi í Árhúsum þar sem framboðsmál voru á dagskrá. Tuttugu manns voru mættir sem er þokkalegt á mælikvarða fundarmætingar hér um slóðir. Á fundinum voru líflegar og gagnlegar umræður um málefni sveitarfélagsins og mikill hugur í fólki. Ákveðið var að bjóða fram lista til sveitarstjórnar á vori komanda og stjórn félagsins falið að vinna málið áfram og boða til fundar sem fyrst aftur. Nokkrir einstaklingar lýstu yfir að þeir væru tilbúnir í framboð en fundarmönnum að öðru leiti falið að koma með ábendingar og tillögur til að vinna úr. Þeir sem lesa þennan pistil og vilja gefa kost á sér eða geta bent á einhvern sem væri vænlegur endilega komið því á framfæri annað hvort í Commenta dálkinn hér á þessari síðu eða til einhverra af aðstandendum Oddaverja.
Svekk að Eiður og félagar skuli hafa tapað í kvöld en nú er bara að taka á því á Nývangi eftir hálfan mánuð.
Annars er þetta Barselona lið frábært og kæmi ekki á óvart að þeir færu alla leið í Meistarakeppninni þetta árið.
Góða nótt, Viðar.

19 febrúar 2006
Gleðilega Góu.

Jæja þá er Þorrin liðinn og eins og veðrið var í dag þá finnst mér að það sé komið vor, þvílík blíða. Sól, logn og átta stiga hiti yfir miðjan daginn.
Þau voru falleg fjöllin okkar þegar sólin gyllti þau árdegis. Forréttindi að eiga þetta umhverfi til að vakna upp við dag hvern og sofna frá á kvöldin. En það er ekki sjálfgefið og það er gott að muna.
Nóg að sinni.
Viðar.
17 febrúar 2006
Hellisheiði.
Komið þið sæl.
Var að koma af fundi um vegabætur á Hellisheiði. Góður fundur og þarft framtak að halda hann af SASS. Samgönguráðherran hélt tölu og svaraði fyrirspurnum og eftir því hvernig hann talaði í kvöld þá er ekki von á tvöföldum á veginum milli Selfoss og Reykjavíkur næsta áratuginn.
Ráðherrann talaði allan tímann um 2+1 í áföngum á næstu árum.
Ég segi, og held að ég tali þar fyrir munn allflestra sunnlendinga, við viljum ekki 2+1 við viljum tvöföldun, tvær aðskildar akgreinar í hvora átt og ekki neitt múður um annað. Fyrir því hafa verið borin á borð næg rök af hálfu SASS og fleiri aðila sem hafa verið að berjast fyrir vegabótum á Hellisheiði. Það liggur t.d. fyrir að umferðarþungi og slysatíðni á Hellisheiði nú er um það bil sú sama og var á Reykjanesbraut þegar ákveðið var að tvöfalda hana. Það þarf ekki frekari vitna við nú þarf að grípa til aðgerða og það sem fyrst EÐA á að bíða eftir jafn hörmulegu atviki á Hellisheiði og varð á Reykjanesbraut og sem varð til þess að menn hófust handa við tvöföldun þar.
Vonandi þarf ekki að koma til þess, en til þess að ráðherrann og yfirmenn vegagerðarinnar sjái ljósið þá VERÐA þingmenn okkar allir sem einn að tala svo skiljist og þá ekki síst þeir sem eru í stjórnarliðinu nú. Það vekur auðvitað furðu að ekki skuli hafa náðs samtaða allra þingmanna kjördæmisins um að styðja þingsályktun um að tvöfalda Hellisheið á allra næstu árum og ég get með engu móti skilið afstöðu stjórnarþingmanna að vilja ekki standa að málinu sameiginlega.
Meira um fundinn seinna en nú segi ég góða nótt.
Viðar.
ES. Endilega gefið "Comment" það er mjög gott að fá viðbrögð og skoðanir.

14 febrúar 2006
Menntaskóla og fræðasetur í Rangárþing.
Komið þið sæl.
Í kvöld verður pistillinn helgaður hugmyndinni um að setja á stofn menntaskóla í Rangárvallasýslu og auka veg framhaldsmenntunar í héraði.
Í nóvenber s.l.hélt Samfylkingarfélag Rang og Vestur Skaft fund, um menntamál í Rangárþingi, að Árhúsum á Hellu. Frummælendur voru rektorar LBHÍ og Bifrastar í Borgarfirði þeir Ágúst Sigurðsson frá Kirkjubæ á Rangárvöllum og Runólfur Ágústsson frá Teigi í Fljótshlíð þá skólastjórar grunnskólanna á Hellu og Hvolsvelli þeir Sigurgeir Guðmundsson og Unnar Þór Böðvarsson ásamt Sveini Runólfssyni Landgræðslustjóra. Síðan var Björgvin G Sigurðsson þingmaður og talsmaður Samfylkingarinnar í menntamálum með ávarp.
Fundarstjórar voru undirritaður ásamt Jóni Ragnari Björnssyni.
Margar góðar hugmyndir voru reyfaðar og ætla ég í þessum pistli að minnast á tvær þeirra. Annarsvegar að stofna menntaskóla Rangæinga og hins vegar að setja á stofn alþjóðlegt fræðasetur í landgræðslu í Gunnarsholti.
Síðarnefnda hugmyndin gengur út á að í Gunnarsholti verði komið á fót aðstöðu til að taka á móti nemendahópum víða að, bæði innanlands og utan, til að fræðast um og stunda rannsóknir á vettvangi landgræðlu og gróðurvarna í víðum skilningi þess orðs. Þarna myndi nýtast vel sú þekking, mannafli og aðstaða sem fyrir er í Gunnarsholti en væri um leið innspýting í þá starfsemi sem fyrir er. Og til að gera hugmyndina að raunveruleika þarf fyrst og fremst samstillt átak opinberra aðila þ.e. ríkis og sveitarfélgs. Aðkoma ríkisins var m.a.hugsuð sem þróunaraðstoð, þar sem nemendum frá þróunarlöndum, þar sem landeyðing er vandamál, væri boðið að koma og fá fræðslu í boði Íslenska ríkisins.
Í því skini að hjálpa til við að koma þessu verkefni í áttina að raunveruleikanum lögðum við fulltrúar Oddaverja fram tillögu um stuðnings ályktun í sveitarstjórn og fengum samþykkta. Í ályktun sveitarstjórnar var skýrt tekið fram sveitarstjórn væri tilbúin að leggja verkefninu fjárhagslegan stuðning og hvatning til ríkisvaldsins að koma að verkefninu. Vonandi verður þetta að veruleika sem fyrst en þá þarf að hamra járnið á öllu vígstöðum.
Fyrrnefnda hugmyndin kom fram hjá Rangæsku Borgarfjarðar rektorunum. Þeir sögðu frá því hvernig hugmynd sem þeir voru upphafsmenn að, var að verða að veruleika í Borgarfirði.
Hugmyndin gekk út á það að stoppa í gat í menntaneti Borfirðinga þar sem framhaldsskólinn er. Fyrir eru í Borgarfirði grunnskólar og háskólar. Þeir kölluðu til fulltrúa frá sveitarfélögum og menntasamfélaginu á svæðinu til að undirbúa málið og staðan í dag er sú að fyrir liggur fullbúin tillaga að menntaskóla Borgarfjarðar á borði menntamálaráðherra. Þetta sama töldu þeir að væri raunhæft að skoða hér í Rangárþingi í ljósi íbúafjölda og þróunar á nemendafjölda í FSU.
Ég held að það ætti að verða eitt af fyrstu verkum nýrra sveitarstjórna á svæðinu eftir næstu kosningar að huga að þessu máli. Hvað aðstöðu og staðarval varðar held ég að við eigum marga kosti sem við þurfum að sjálfsögðu að skoða vel. Í mínum huga er þó einn staður öðrum fremri hvað þetta varðar en það er Laugaland í Holtum.
Menntaskólinn að Laugalandi eða Framhaldskólinn á Laugalandi hljómar það ekki spennandi??
Sæl að sinni, Viðar.

12 febrúar 2006
Dagurinn hans Dags.
Sæl nú.
Gott blót í gærkvöldi, góður matur, fín skemmtiatriði og rífandi fjör í dansinum. Aðeins hnökrar í nýja dýra hljóðkerfinu en það hlýtur að verða lagað einnig fannst mér óvenju mikil reykjarbræla berast inn í sal sem þyrfti að athuga með lausn á fyrir næsta ár.
DAGUR!!
Dagurinn í dag held ég að komist í sögubækur fyrir þær sakir að Dagur B Eggertsson vann glæsilegan sigur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnar kosningarnar í vor. Ég held að hér hafi Samfylkingunni auðnast að fá til metorða mann sem á eftir að marka djúp spor í stjórnmálasögu þjóðarinnar næstu árin og jafnvel næstu áratugina ef miðað er við ungan aldur Dags.
Til skemmri tíma litið þýðir þetta hins vegar það að nú er úti um meirihlutadrauma Villa Vill og D-listans í Borginni.
Það mun renna upp fyrir Reykvíkingum þegar þeir bera saman þá kosti sem í boði eru að þeir vilja ekki kjósa yfir sig nú árið 2006 það sem þeir höfnuðu árið 1994. Það mun kristallast fyrir augum kjósenda þegar þeir koma saman í panel Dagur og Villi að þar fara framtíð gegn fortíð og allir sjá hvernig þau úrslit verða.
Annars vorkenni ég Vilhjálmi, sem er að ýmsu leiti mætur maður og ég hef alltaf metið hans stöðu í pólitík þannig að hann sé vinstra megin í Sjálfstæðisflokknum. Og kannski er það þess vegna sem hann fékk framan af ekki það brautargengi innan flokksins sem hann sóttist eftir.
Hann var í raun sniðgengin af Davíðsarminum og komst ekki til metorða meðan sá armur réði lögum og lofum innan flokksins. Allir þekkja þá sögu, Markús Örn, Árni Sigfúss, Inga Jóna og síðan Björn Bjarna öll tekin fram yfir Villa og aldrei gekk rófan. En nú þegar Davíðsöld er úti í Sjálfstæðisflokknum þá er Villi orðinn nógu góður, nægilega miðjusækinn(vinstrisinnaður) til að leiða flokkinn út úr eyðimörkinni.
EN - það er risinn nýr Dagur og því mun Vilhjálmur áfram verða svolítið eins og riddarinn sjónumhryggi don kýkóti, vindmyllur út um allt
en engin völd.

11 febrúar 2006
Blessuð blíðan.
Veðurguðirnir halda upp á daginn með afmælisbarninu rétt eins og þeir hafi á því sérstaka velþóknun. Alltaf gott að taka á móti blíðunni og ekki síst á Þorra þegar líklegra væri að úti væri frost og fönn.
Var í morgun á Oddaverjafundi þar sem verið var að huga að undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar. Ákveðið var að halda opinn fund miðvikudaginn 22. feb. n.k. þar sem ákveðið verði með hvaða hætti boðið verði fram og hvernig aðferð verði viðhöfð við að raða upp á lista.
Hvet ég alla að koma og vera með í að móta stefnuna fyrir sveitarfélagið okkar og ekki síður vil ég hvetja fólk sem hefur áhuga á að bjóða fram krafta sína eða geta bent á aðra sem þeir telja að eigi erindi í framboð.
Ekki veitir af að sem flestir reyni að hafa áhrif á hvernig samfélag við búum okkur og munum við fagna hverjum þeim sem vill leggjast á sveifina með okkur Oddaverjum. Mætið því sem flest á fundinn og hafið áhrif. Fundarstaður verður auglýstur í Búkollu.
Félagar mínir í borginni eru að halda glæsilegt OPIÐ prófkjör nú um helgina og verður spennandi að sjá útkomuna.
Kannski er opið prófkjör sú aðferð sem við ættum að halda Oddaverjar til að velja okkar frambjóðendur??
Meira síðar, sæl að sinni

10 febrúar 2006
Byrjun
Komið þið sæl.
Á þessari síðu ætla ég að viðra skoðanir mínar um allt milli himins og jarðar sem mér finnst máli skipta. Hér verður fjallað jafnt um innlend málefni sem alþjóðamál ef svo ber undir en mest verður þó líklega rætt um málefni míns ágæta sveitarfélags. Og þar er af nógu að taka.
Meira um það seinna en nú var klukkan var að slá í miðnætti og við tekur nýr sólarhringur, nýr dagur sem er 11. febrúar og þá eiga sumir afmæli og í kvöld er Þorrablót.
Sæl að sinni.