11 febrúar 2006

 

Blessuð blíðan.

Veðurguðirnir halda upp á daginn með afmælisbarninu rétt eins og þeir hafi á því sérstaka velþóknun. Alltaf gott að taka á móti blíðunni og ekki síst á Þorra þegar líklegra væri að úti væri frost og fönn.
Var í morgun á Oddaverjafundi þar sem verið var að huga að undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar. Ákveðið var að halda opinn fund miðvikudaginn 22. feb. n.k. þar sem ákveðið verði með hvaða hætti boðið verði fram og hvernig aðferð verði viðhöfð við að raða upp á lista.
Hvet ég alla að koma og vera með í að móta stefnuna fyrir sveitarfélagið okkar og ekki síður vil ég hvetja fólk sem hefur áhuga á að bjóða fram krafta sína eða geta bent á aðra sem þeir telja að eigi erindi í framboð.

Ekki veitir af að sem flestir reyni að hafa áhrif á hvernig samfélag við búum okkur og munum við fagna hverjum þeim sem vill leggjast á sveifina með okkur Oddaverjum. Mætið því sem flest á fundinn og hafið áhrif. Fundarstaður verður auglýstur í Búkollu.

Félagar mínir í borginni eru að halda glæsilegt OPIÐ prófkjör nú um helgina og verður spennandi að sjá útkomuna.
Kannski er opið prófkjör sú aðferð sem við ættum að halda Oddaverjar til að velja okkar frambjóðendur??
Meira síðar, sæl að sinni
Viðar.

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++