12 febrúar 2006

 

Dagurinn hans Dags.

Sæl nú.
Gott blót í gærkvöldi, góður matur, fín skemmtiatriði og rífandi fjör í dansinum. Aðeins hnökrar í nýja dýra hljóðkerfinu en það hlýtur að verða lagað einnig fannst mér óvenju mikil reykjarbræla berast inn í sal sem þyrfti að athuga með lausn á fyrir næsta ár.
DAGUR!!
Dagurinn í dag held ég að komist í sögubækur fyrir þær sakir að Dagur B Eggertsson vann glæsilegan sigur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnar kosningarnar í vor. Ég held að hér hafi Samfylkingunni auðnast að fá til metorða mann sem á eftir að marka djúp spor í stjórnmálasögu þjóðarinnar næstu árin og jafnvel næstu áratugina ef miðað er við ungan aldur Dags.
Til skemmri tíma litið þýðir þetta hins vegar það að nú er úti um meirihlutadrauma Villa Vill og D-listans í Borginni.
Það mun renna upp fyrir Reykvíkingum þegar þeir bera saman þá kosti sem í boði eru að þeir vilja ekki kjósa yfir sig nú árið 2006 það sem þeir höfnuðu árið 1994. Það mun kristallast fyrir augum kjósenda þegar þeir koma saman í panel Dagur og Villi að þar fara framtíð gegn fortíð og allir sjá hvernig þau úrslit verða.
Annars vorkenni ég Vilhjálmi, sem er að ýmsu leiti mætur maður og ég hef alltaf metið hans stöðu í pólitík þannig að hann sé vinstra megin í Sjálfstæðisflokknum. Og kannski er það þess vegna sem hann fékk framan af ekki það brautargengi innan flokksins sem hann sóttist eftir.
Hann var í raun sniðgengin af Davíðsarminum og komst ekki til metorða meðan sá armur réði lögum og lofum innan flokksins. Allir þekkja þá sögu, Markús Örn, Árni Sigfúss, Inga Jóna og síðan Björn Bjarna öll tekin fram yfir Villa og aldrei gekk rófan. En nú þegar Davíðsöld er úti í Sjálfstæðisflokknum þá er Villi orðinn nógu góður, nægilega miðjusækinn(vinstrisinnaður) til að leiða flokkinn út úr eyðimörkinni.

EN - það er risinn nýr Dagur og því mun Vilhjálmur áfram verða svolítið eins og riddarinn sjónumhryggi don kýkóti, vindmyllur út um allt
en engin völd.

Comments:
Hæhæ, takk fyrir síðast og til hamingju með hugarflugssíðuna þína. Ég setti link inn á síðuna þína frá minni.
Kveðja Tinna
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++