22 febrúar 2006
Fundur um framboðsmál.
Góða kvöldið.
Var að koma af Oddaverjafundi í Árhúsum þar sem framboðsmál voru á dagskrá. Tuttugu manns voru mættir sem er þokkalegt á mælikvarða fundarmætingar hér um slóðir. Á fundinum voru líflegar og gagnlegar umræður um málefni sveitarfélagsins og mikill hugur í fólki. Ákveðið var að bjóða fram lista til sveitarstjórnar á vori komanda og stjórn félagsins falið að vinna málið áfram og boða til fundar sem fyrst aftur. Nokkrir einstaklingar lýstu yfir að þeir væru tilbúnir í framboð en fundarmönnum að öðru leiti falið að koma með ábendingar og tillögur til að vinna úr. Þeir sem lesa þennan pistil og vilja gefa kost á sér eða geta bent á einhvern sem væri vænlegur endilega komið því á framfæri annað hvort í Commenta dálkinn hér á þessari síðu eða til einhverra af aðstandendum Oddaverja.
Svekk að Eiður og félagar skuli hafa tapað í kvöld en nú er bara að taka á því á Nývangi eftir hálfan mánuð.
Annars er þetta Barselona lið frábært og kæmi ekki á óvart að þeir færu alla leið í Meistarakeppninni þetta árið.
Góða nótt, Viðar.