26 febrúar 2006

 

Sunnudagur fyrir sálina.

Komið þið sæl.
Hvað er meira viðeigandi en að velta fyrir sér kjarna lífsins, spurningum og svörum mennskuna, á sunnudagskvöldi.

Var að horfa á þáttinn sjálfstætt fólk á stöð tvö áðan sem fjallaði um mannúðarstarf Njarðar P Njarðvík í Afiríku. Í hvert sinn sem maður sér þætti sem þennan, sem opnar glugga inn í veröld sem er okkur hér á vesturlöndum algjörlega framandi,fær maður sektartilfinningu. Þarna snýst lífið um frumþarfirnar að hafa í sig og á og ekkert umfram það. Og tölfræðin er rifjuð upp fyrir okkur, 2/3 mannkyns eiga verla til hnífs og skeiðar og þar af býr 1 af hverjum 10 við algera örbirgð og í mörgum tilfellum stríðsástand í ofanálag. Frammi fyrir þessum staðreyndum verður manni litið niður með eigin nefi og verður hugsað til þess hyldýpis sem er á milli þeirrar ofgnóttar og óhófs sem hér tíðkast og þess sem stór hluti mannkyns upplifir.
OG- þrátt fyrir það að margt gott sé gert til að brúa þetta bil, af smáum aðilum eins og Nirði P Njarðvík og einnig stórum hjálparstofnunum og ríkisstjórnum, þá er staðreyndin samt sú að bilið milli snauðra og ríkra í veröldinni er sífellt að breikka.
EN hvers vegna, hvað veldur og hvað er til ráða.
Þegar spurningarnar eru stórar þá verður oft lítið um svör eins og alkunna er. En við verðum samt að reyna hvert og eitt að koma með okkar tillögu að svari og lausn.
En við leitina að svarinu skulum við varast að reyna að finna upp einhvert sannleikshjól, eitthvað alsherjar elexsír sem öllu bjargar.
Mannkynið á nefnilega svörin til, það þarf bara að tína þau saman og raða uppá nýtt. Eða er ekki í öllum helstu trúarbrögðum og siðferðiskenningum heimsins kærleiksboðskap að finna sem væri vel nothæfur sem vegvísir að betri heimi ef mannkynið færi eftir honum?

Mín tillaga er því sú að stofnað verði vitringaráð á vegum SÞ sem fegi það hlutverk að búa til nýja samræmda "ritningu" úr því besta úr trúarboðskap og siðferðiskenningum heimsins. Er ekki kominn tími til að aðlaga helstu gildi siðmenningar að nútímanum þegar fyrir liggur að það sem við höfum dugar okkur ekki.
Annars er ég hræddur um að mannkynið verði áfram að glíma við afleiðingarnar af því þegar synir Abrahams þeir Ishmael and Isaac fóru hvor sína leiðina fyrir þúsundum ára og urðu forfeður Araba og Gyðinga.
Er það t.d. ekki í raun sá atburður sem er frumorsök ástandsins í suðupotti miðusturlanda nú?
Lifið heil,
Viðar.

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++