24 febrúar 2006

 

Tollfrelsi

Komið þið sæl.
Í dag bárust gleðilegar fréttir úr Utanríkis og landbúnaðarráðuneyti varðandi tollfrelsis samninga við ESB á grundvelli EES samningsins.(Mikill snillingur er Jón Baldvin að koma þessum samningi í gegn á sínum tíma, samningurinn hefur verið undirstaða velgengni í efnahagsmálum Íslendinga síðan og er enn.)
Nú fá þeir félagar Guðni og Geir prik frá mér fyrir góða frammistöðu við að nýta möguleika EES samningsins og á þessu sést að sá umdeildi samningur er nokkurs virði enn í dag þrátt fyrir ýmis orð um annað.

Þessir nýju möguleikar eiga eftir að verða landbúnaðinum dýrmætir og nú er að bretta upp ermar og nýta þá sem best. Sala hrossa til Evrópu á eftir að taka kipp við þetta á næstu árum og leiða til mikillar gullaldar hjá hrossaræktendum ef rétt er á spöðum haldið. Þetta verður viðbót við þá miklu grósku sem verið hefur í greininni hér innanlands undanfarin ár.

Og úr því ég er að tala um hestamennsku þá tek ég ofan hatt minn fyrir VIS keppninni. Þarna er kominn fyrsti vísir að keppnisformi sem á eftir að eflast og þróast á næstu árum og auka veg hestamennskunnar á allan hátt og auka fjölmiðla umfjöllun um hana.
Sæl að sinni Viðar.
ES. Halló er einhver að lesa, ef svo gefið "comment"

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++