31 mars 2006
Oddaverjar á lífi.
Jæja þá er orðið ljóst að tillaga um að leggja Oddaverja niður var kolfelld á aðalfundi félagsins s.l.miðvikudagskvöld með samhljóða atkvæðum allra fundarmanna. Kom þetta ánægjulega á óvart því búist var við að þeir sem lögðu fram tillöguna myndu fylgja henni fast eftir.
Svo varð ekki og því eru Oddaverjar sprelllifandi sem aldrei fyrr og má kannski segja sem svo að úr því sem komið var þá hafi þessi útganga tveggja félaga verið heillaspor fyrir félagið og vonandi fyrir þá einnig.
Ljóst er nú að prófkjör D-listans var freisting sem var of stór fyrir þessa fyrrum félaga vora og vonandi gengur þeim vel á þeim vettvangi því annars má búast við að þeir leggji til að Sjálfstæðisflokkurinn verði lagður niður!!!!
Oddaverjar hafa á að skipa öflugum hópi fólks sem er tilbúinn í baráttu fyrir betra samfélagi hér í Rangárþingi ytra. Af nógu er að taka þegar málefnin eru annars vegar.
Það má gera betur á mörgum sviðum:
- Fjárhagsstaðan er þröng þar þarf nýja hugsun.
- Umhverfismál þarf að setja framar á forgangslista.
- Efla Grunnskólana með bættri aðstöðu og enn meiri fagmennsku.
- Stórauka þarf dagvistarrými með byggingu nýs leikskóla á Hellu ásamt auknum stuðningi við dagforeldra.
- Nýta betur eignir sveitarfélagsins á Laugalandi og í Þykkvabæ bæði til að auka þjónustu og atvinnu.
- Framhaldsskóla í sveitarfélagið.
- Fræðasetur í Gunnarsholt.
- Hesta akademíu á Gaddstaðaflatir.
- Bjargsbyggð í framkvæmd.
- Vatnsveitumál eru eitt af forgangmálunum.
- Fráveitu framkvæmdum á Hellu þarf að ljúka með endastöð í Gaddstaðasíki.
- Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins þarf að gera virka.
- Atvinnu og þjónustumálum þarf að sinna betur.
- Skipulagsmál með heildarsýn yfir allt sveitarfélagið.
- Þjónustu við eldri borgara þarf að efla og treysta rekstrargrundvöll Lundar.
- Æskulýðs og forvarnarstarf þarf að stórefla.
Svo mætti lengi telja.
Verkefnin eru mörg og af nógu er að taka þegar hugað er að betra samfélagi, samfélagi sem setur manngildið í fyrsta sæti.
Og þá er bara að taka til óspilltra málanna með framboðsmálin.
Í næstu viku munu línur skýrast með þau mál.
Sæl að sinni, Viðar.
19 mars 2006
Framboðsmál í Rangárþingi ytra.

Sæl nú.
Þá eru línur eitthvað að skýrast í framboðsmálum í Rangárþingi ytra.
Framsóknarmenn segjast vera að ljúka við samsetningu á lista og hafa hafnað aðkomu að sameiginlegu framboði miðju og vinstrimanna hér.
Ég vona, og er þá að hugsa um bæði sóma Framsóknarmanna og lýðræðið, að þeir sýni meiri ábyrgð en þeir hafa gert á yfirstandandi kjörtímabili. Það hefur því miður of oft komið fyrir að fulltrúi Framsóknarmanna hafi mætt á hreppsnefndarfundi með umlagið utan um fundargögn lokað og það kalla ég vanvirðu við kjósendur og lýðræðið.
Sjálfstæðismenn eru komnir með þá sem taka munu þátt í prófkjöri þar á bæ. Ljóst er að þar mun verða mjög harður slagur um efstu sæti þar sem 3 hafa sett stefnuna á 1. sætið og fleiri en einn um næstu sæti þar fyrir neðan. Athygli vekur að af þeim sem sækjast eftir efstu sætum þá vekur athygli að verulega margir frambjóðenda eru ættaðir frá Ægissíðu. Þannig að það stefnir kannski í að þar verði um Ægissíðu slagsíðu að ræða en það kemur nú allt í ljós.
Hitt er alveg ljóst að um ákveðið uppgjör verður að ræða hjá Sjálfstæðismönnum sem hefur verið undirliggjandi um langan tíma.
Vonandi koma allir heilir frá þeim hildarleik en það sem er mikilvægast er að það bitni ekki á sveitarfélaginu ef illa fer.
Því segi ég við ykkur íbúa Rangárþings ytra gefum sjálfstæðismönnum frí til að jafna málin í eigin herbúðum og í leiðinni láta á reyna hvort ekki séu aðrir möguleikar í stöðunni.
Ekki er af svo glæsilegum árangri að státa hjá þeim á undangengnum árum og áratugum það sýnir staða sveitarfélagsins fyrr og nú svo hver er áhættan önnur en von um berti tíð.
Það er mikil þörf á að breytingar verði á stjórn okkar ágæta sveitarfélags til að leysa það úr læðingi stöðnunar og illvígra persónulegra deilna innan Sjálfstæðisflokksins. Sveitarfélagið þarf ekki og á ekki að vera í herkví slíks ástands. Breytum því.
Ég boða hér með að hafinn er undirbúningur að framboði samvinnu, jafnaðar og vinstrimanna í okkar sveitarfélagi. Þegar hefur verið rætt við stóran hóp fólks og undirtektir hafa verið góðar og hugur í fólki.
Ég hef bent fólki á að hafa samband við þann sem hér skrifar ef það hefur ábendingar um fólk eða málefni og hefur því verið vel tekið og vil ég hér með enn á ný hvetja íbúa til að vera í sambandi.
Sæl að sinni, Viðar.
17 mars 2006
Aðalfundur LBHÍ - Guðni fær hrós.
Var á aðalfundi LBHÍ á Selfossi í dag. Vel til fundið hjá Ágústi rektor að koma með fundinn á Suðurland og eflaust spilar þar inn í Sunnlenskur uppruni hans. Gaman var að fá kynningu á hinu fjölbreytta námi sem er í boði hjá skólanum. M.a. var sagt frá hvernig skólinn starfrækir útstöðvar sínar og er samstarfsaðili við aðra skóla og stofnanir.
Ég sé fyrir mér að þarna væri tækifæri fyrir okkur Rangæinga til að efla hér æðri menntun. Gæti séð fyrir mér að hugmyndir um fræðasetur Landgræðslunnar í Gunnarsholti gætu orðið að raunveruleika með þannig samstarfi Landgræðslu og LBHÍ þar sem sveitarfélagið væri þriðja hjól undir vagni í því formi að liðka til með ytra umhverfi og fá stuðning ríkisins. Einnig mætti hugsa sér, að þegar lokið verður uppbyggingu á Gaddstaðaflötum, þá verður þar til staðar aðstaða sem hugsanlega mætti nýta til að setja á stofn útstöð frá LBHÍ varðandi eitthvert afmarkað svið hestamennsku og hrossaræktar.
Sem segir okkur það að menn þurfa að spýta í lófa í þeirri uppbyggingu.!!
Á fundinum hitti ég m.a. Landbúnaðarráðherran Guðna og hann fékk að þessu sinni hrós frá mér vegna ummæla hans vegna brotthvaðningar BNA hers.
Meðan Forsætis og utanríkisráðherra voru enn á hnjánum ef ekki marflatir fyrir fótum Kanans þá lét Guðni þá heyra það og gerði sitt til að bæta laskaða sjálfsmynd þjóðarinnar.
Það hefur verið vægast sagt ömurlegt að horfa upp á það hvernig núverandi forsætisráðherra hefur skriðið fyrir BNA mönnum og þar er auðvitað lægsta lægðin stuðningurinn við Íraksstríðið sem hann lagði á þjóðina ásamt fyrrverandi forsætisráðherra.
Íslenski fáninn var dreginn að hún hér á Kaldbak í gær eins og til stóð og í dag segi ég húrra fyrir Guðna Ágústssyni vegna ummæla hans í dag og fyrir Ágústi Sigurðssyni fyrir að koma með ársfundinn til okkar á Suðurland og það góða starf sem hann er að leggja að mörkum sem rektor LBHÍ.
Gott að sinni, kveðja Viðar.
15 mars 2006
Eftirköst Davíðskunnar
Nú er Íslenskt þjóðfélag að upplifa timburmennina eftir valdatíð Davíðs. Ég spái því að eftirskjálftar þeirra stóru skjálfta, sem nú ríða yfir þjóðfélagið og munu gera á næstu mánuðum, muni síðan allt að því "tremma Sjálfstæðisflokkinn í hel" og það finnst mér mikil synd.
Framan af var Sjálfstæðisflokkurinn frjálslyndur flokkur hægra megin að miðju. Á síðasta áratug síðustu aldar varð flokkurinn hins vegar fámennri frjálshyggjuklíku að bráð sem sveigði hann yst til hægri og tók Íslenskt þjóðfélag með sér í það ferðalag. Við erum að gjalda fyrir það og verðum enn um sinn.
Það hefur í langan tíma verið reynt að stagla ofan í þjóðina að hér sé góðæri og stöðugleiki, mikið efnahagsundur á ferð.
Ráðamenn hafa verið á hnjánum í BNA við að halda hernum hér án þess að vita af hverju og algerlega á móti vilja BNA manna. En alltaf hefur þjóðinni verið sagt að málið sé í traustum höndum "persónulegra tengsla" ráðamanna við BNA stjórn m.a. vegna stuðnings við Íraksstríð.
Ríkislögreglustjóra er sigað berfættum og vettlingalausum á bisnessmenn sem voru "Valhallarklíkunni" ekki að skapi líklega til að halda "aga í hernum" eins og góði dátinn Sveik orðaði það.
Fréttir undanfarinna vikna hafa hins vegar verið undirlagðar af spám aðallega erlendis frá um fallvaltleika Íslensks efnahagslífs.
Verðbréf hafa fallið í verði og gengi krónunnar lækkað. Öll viðvörunarljós efnahagslífsins virðast blikka í rauðum lit.
Svo kemur þessi miðvikudagur með sín stóru tíðindi.
Herinn burt og Baugsmenn með geislabaug frá héraðsdómi.
Eftir standa stjórnarherrar á nýju fötunum keisarans einum fata frammi fyrir þjóðinni og það gefst á að líta eða hitt þó heldur.
En eins og fyrri daginn þá má segja að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott.
- Herinn fer sem er gleðilegt skref í sjálfstæðissögu Íslands. Nú er hægt að snúa sér að því að búa til "Landsbjargargæslu" Íslands og gera landið þar með loksins frjálst og fullvalda. Það verður flaggað að húni á Kaldbak á morgun í tilefni af fréttum af brottför hersins.
- Þjóðin mun loksins komast úr viðjum hermangsins og alls sem því hefur fylgt m.a. ítök Sjálfstæðisflokksins í skjóli þess.
- Þjóðin mun velja sér jafnaðarmenn til að stýra hér málum á næstu árum á hófsaman hátt með manngildi ofar auðgildi og áherslu á að EINSTAKLINGARNIR fái að njóta sín í samfélagi sem virðir þá og metur.
Það er sem betur fer bjart fram undan hjá ríkri og dugmikilli Íslenskri þjóð þrátt fyrir að hafa lent á þessu frjálshyggju kendiríi.
Góðar stundir. Viðar.
11 mars 2006
Pólitísk "rétthugsun".
Nokkrar umræður hafa að undanförnu verið um fyrirbæri sem kallast pólitísk "rétthugsun". Þessi umræða hefur komið upp m.a. vegna þess að nýlega hefur verið gerð í BNA mynd um ævi Joe McCarty sem var þingmaður þar vestra snemma á sjötta áratugnum og vann það sér helst til frægðar að komast til frama í pólitík með lygum og prettum og reyna síðan að bjarga sínum pólitíska ferli með því að gerast kommahatari.
Og nota bene hann náði hljómgunni meðal margra BNA manna í ótrúlega langan tíma. Svo fór þó að lokum að augu manna opnuðust gagnvart McCarty og nú er saga hans einn svartasti blettur í stjórnmálasögu BNA. Myndin verður væntanlega sýnd hér áður en langt um líður og hvet ég alla til að sjá hana því efni hennar hlýtur að vera öllum hollt til umhugsunar.
Inntakið í pólitískri rétthugsun og McCarty isma er að stimpla alla þá sem voga sér að opna munninn, eða stinga niður penna, til að koma á framfæri gagnrýni á rikjandi skoðun, ástand og stjórnvöld.
McCarty stimplaði alla kommúnista sem gagnrýndu Bandarískt þjóðfélag og stjórnvöld á þeim tima og lenti fjöldi fólks í miklum hremmingum af hans völdum.
Ef við setjum pólitíska "rétthugsun" inn í okkar nútíma þá sjáum við hennar víða stað. Allir sem fylgjast með Íslenskri pólitík þekkja dæmin.
Hver kannast ekki við viðbrögð stjórnvalda við gagnrýni á t.d. skattamál,Öldrunarmál,stóriðjumál, einkavæðingu,öryrkjamál og fl.
Ef gagnrýnin er frá fræðimönnum eða hagsmunahópum, eins og félagi eldri borgara, Öryrkjabandalaginu eða öðrum, þá svara stjórnvöld að annað hvort kunni menn ekki að reikna eða þá misskilja og ef það ekki dugir þá er því slengt fram að viðkomandi sé í pólitík.
Nú ef gagrýnin kemur af hinu pólitíska sviði þá eru menn jú bara á móti öllu, kommar eða kratar og ef ekki vill betur afturhaldskommatittir.
Svona er nú umræðan mjög í McCarty´s anda á Íslandi í dag.
Ég ætla að lokum að minnast á hvernig pólitísk "rétthugsun" birtist mér í okkar litla samfélagi hér í okkar sveitarfélagi.
Ein hlið þess snýr að því hve erfitt er að fá fólk til að bjóða sig fram til að starfa að sveitarstjórnarmálum hér. Þegar talað er við fólk um að ganga fram fyrir skjöldu þá er það mjög oft hrætt við að styggja ríkjandi öfl sem hér í Rangárþingi ytra eru Sjálfstæðisflokkurinn. Hin pólitíska umræða hér gengur út á það að stimpla þá sem ganga gegn ríkjandi öflum og gera þá tortryggilega. Heyrum við ekki að minnihlutinn sé á móti ÖLLU-JÁ ÖLLU. Ef sá sem gagnrýnir er ekki sjálfstæðismaður þá er ekki að marka og hann er bara á móti, er kommi jafnvel krati eða frammari sem er þó skárra því þeir eru í útrýmingarhættu og þess vegna ekki eins hættulegir.
Og ef einhverjir merktir D fara út af línunni og jafnvel í samstarf við vafasama aðila þá er litið á þá sem pólitískt holdsveika meðan á því samstarfi stendur.
Annar flötur á þessu þankagangi er að fólk er hreinlega hrætt við að missa vinnu vegna"óhefðbundinna" pólitískra skoðana ef það lætur þær uppi. Ég get persónulega vitnað um að slíkt er fyrir hendi hér.
Eins og þið flest vitið var ég um tíma að vinna fyrir Rangárbakka Hestamiðstöð Suðurlands en hætti því fyrir um ári síðan. Starf sem ég hafði mikla ánægju af og áhuga á.
Eina ástæða þess að ég sagði þessu starfi lausu var að það barst athugasemd til stjórnarmanna um að starfsmaður Rangábakka væri ekki af réttum pólitískum lit.
Ég tek það skýrt fram að stjórn Rangárbakka stóð heilshugar á bak við mig þegar þetta kom upp en ég taldi mér ekki sætt lengur vegna þess hugsanlega möguleika að ég myndi skaða félagið í sókn þess í opinbert fjármagn.
Þannig að ég veit af eigin reynslu að þessi ömurlegi þankagangur er til hér og ótti fólks vegna þessa því ekki ástæðulaus.
Þessum hugsunarhætti verðum við að breyta því þetta er ein af helstu ástæðum þess að hér ríkir stöðnun en ekki framfarir. Þar sem eru þröskuldar fyrir gagnrýna hugsun og og hugarfar manna mótast af pólitískri "rétthugsun" verður slíkt ástand viðvarandi.
Frjáls hugsun er það sem gerir hvern mann sjálfstæðan einstakling, hugsum um það.
Sæl að sinni Viðar.
10 mars 2006
Baknag a-la Gróa á Leiti.
Í þetta sinn ætla ég að segja ykkur frá því sem er dapurlegast við að starfa í pólitík.
Í dag hitti ég sveitunga minn og ágætan kunningja sem sagði mér frá samtali sem hann varð vitni að nú nýverið. Til umræðu voru sveitarstjórnarmál í Rangárþingi ytra. Einum af þeim sem voru í þessari umræðu var sérlega uppsigað við þá sem hafa skipað minnihluta hreppsnefndar á því kjörtímabili sem er að líða. Taldi hann að þeir hefðu verið á móti öllu sem lagt væri til og hóf síða mikinn lestur um hvern og einstakan í hópnum þar sem hann jós óhróðri yfir persónur viðkomandi og fjölskyldur þeirra.
Mín fyrstu viðbrögð við að heyra þetta voru að hugsa að þetta væri nú bara veikur maður sem þarna talaði og þetta gæti ekki haft nein áhrif á viðhorf fólks yfirleitt.
Mér brá hinsvegar þegar ég hitti annan sveitunga minn, og enn komu sveitarstjórnarmálin til umræðu, þegar sá fann að því við mig að við minnihlutamenn værum á móti ÖLLU.
Þó að þessi viðmælandi endurómaði sem betur fer ekki baknagið og Gróusögurnar þá sá ég að málflutningur sem byggður er á óljósum alhæfingum, krydduðum með persónulegum óhróðri fá hljómgrunn því miður.
Þegar ég síðan gekk á þennan viðmælenda minn um að nefna sérstök dæmi máli sínu til stuðnings þá varð fátt um svör. Þegar ég síðan tiltók nokkur mál sem hafa verið afgreidd nýlega hjá sveitarstjórn og sagði honum hvernig hefðu gengið fyrir sig þá kom hann af fjöllum og vissi nákvæmlega EKKI neitt um málin. Spurði ég hann þá hvernig hann hefði komist þeirri niðurstöðu að við minnihlutamenn værum á móti öllu þá sagði hann að þetta væri SAGT.
Nú já hugsaði ég, Gróa hefur hljómgrunn eins og fyrri daginn og mér (okkur) hefur mistekist að koma mínu (okkar) sjónarhorni á framfæri.
Mig langar því allri einlægni að biðja ykkur kæru sveitungar að taka afstöðu til mála eftir að hafa kannað málin sjálf, hafið endilega samband og spyrjið spurninga og fáið upplýsingar.
Pólitísk átök eiga að vera málefnaleg, sanngjörn og snörp ef svo ber undir en algjört skilyrði er að skilja á milli pólitíkur og persónu að ekki sé talað um fjölskyldur og vandamenn.
Ekki láta mata ykkur á skoðunum sem byggðar eru á fordómum og alhæfingum og ALLS EKKI taka þátt í persónulegum níð af neinu tagi né láta slíkt stjórna skoðunum ykkar.
Með lýðræðiskveðju, Viðar.
08 mars 2006
Til hamingu með daginn konur.
Til hamingju með daginn konur. Gerið endilega eitthvað í tilefni dagsins til dæmis um það sem er í boði er eftirfarandi:>
Alþjóðlegum baráttudegi kvenna fagnað
Öll helstu samtök launafólks standa í dag fyrir opnum hádegisverðarfundi á Grand Hóteli í Reykjavík í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna.Yfirskrift fundarins er "Konur og hnattvæðing - er heimurinn eitt atvinnusvæði?" Síðdegis verður efnt til opins fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefst hann klukkan 17. Að fundinum standa fjölmörg hagsmunasamtök launafólks auk samtaka kvenna af erlendum uppruna, samtaka um kvennaathvarf, Stígamót, Öryrkjabandalag Íslands og Kvenréttindafélag Íslands svo einhver séu nefnd. Þar mun hljómsveitin Amina spila fyrir gesti. Í kvöld heldur femínistafélagið Bríet svo baráttufund þar sem leitast verður við að endurskapa stemmningu baráttuára Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Fundurinn verður á Dubliners og hefst klukkan 20 í kvöld. Í háskólanum á Akureyri verður rithöfundurinn Gunnar Hersveinn með erindi um arfmyndir kynjanna í auglýsingum og hefst það klukkan hálf fimm.
Jafnrétti alla daga,
kveðja Viðar.
Áhugaverð grein
Sá þessa grein á Vísi í morgun, ber hana til ykkar meðan ég sötra kaffið, lítið á það> www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060308/SKODANIR04/103080053/1037
Sjáið einnig frétt á Vísi sem fjallar um flutning á starfsemi Marel austur Evrópu.
Svo tala ráðamenn eins og allt sé í sóma og kynda bara af enn meiri krafti undir álkötlunum.
Kveðja Viðar.
07 mars 2006
Forgangsröðun og fordæmi
Var að tala við formann Rangárbakka hestmiðstöðvar um það sem er fram undan á Gaddstaðaflötum. Verið er að vinna að því að fá sem mest fjármagn úr reiðhallarsjóði landbúnaðarráðherra. Til að sem mestur árangur náist þurfa sveitarfélögin í sýslunni að standa þétt á bak við verkefnið bæði móralskt og með umtalverðu fjármagni. Erindi þess efnis er á leiðinni til sveitarstjórnanna. Mikilvægt er að rúm sé fyrir slík fjárframlög hjá sveitarfélögunum og samstaða um að leggja þau fram.
Það leiðir hugann að því að sveitarstjórnirnar hafa ekki ótakmarkað fjármagn til slíkra hluta og þurfa að vanda sig þegar verkefni eru valin sem styrkja skal myndarlega. Í gegn um tíðina hafa slík framlög farið í gegn um Héraðsnefnd og eingöngu verið bundin við sameiginleg verkefni sveitarfélaganna svo sem Byggðasafn í Skógum og einnig verkefni sem fjölmenn félagasamtök standa á bak við.
Það er því algjört stílbrot þegar Héraðsnefnd leggur nú til að sveitarfélögin í Rangárvallasýslu styrkji einkaaðila um 10 milljónir króna á þremur árum.
- Þarna er í fyrsta lagi verið að gefa fordæmi sem sveitarsjóður okkar í Rangárþingi ytra ræður ekki við, aðrir verða að dæma um hvað við á í Ásahreppi og Rang eystra.
- Í öru lagi skerðir þetta möguleika sveitarfélaganna á að koma með krafti að verkefnum eins og uppbyggingunni á Gaddstaðaflötum sem ég álít að sé "dæmigert" verkefni sem sveitarfélögin geta staðið að sameiginlega.
- Og í þriðja lagi er þetta að mínu áliti ekki góð meðferð á fé skattgreiðenda í ljósi þess sem að framan greinir..
Ég læt fylgja með afgreiðslu sveitarstjórnar Rangárþings ytra á þessu erindi svo þið getið séð hvernig það var afgreitt þar
Hér kemur það beint ú fundargerðarbókinni:
2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:
2.1 Héraðsnefnd Rangæinga - 16. fundur 2/2 2006 í 8 liðum.
Héraðsnefnd gerir tillögu um aukið framlag til Héraðsnefndar á árinu 2006 vegna styrkveitingar skv. 2. lið fundargerðarinnar.
Tilmæli um aukið framlag vegna styrkveitingar sbr. 2. lið fundargerðarinnar samþykkt með 6 atkvæðum, 3 sitja hjá (VHS. ÞS. HH.) Fjárveitingu vegna þessarar samþykktar er vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
Undirritaður fulltrúar K- og Ó-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaðir sitja hjá við afgreiðslu þessa máls. Ástæðan er ekki sú að hugmyndin sem slík sé ekki góðra gjalda verð. Við teljum að Héraðsnefnd Rangæinga sé að marka nýja stefnu í styrkveitingum til einstakra aðila hvað upphæð varðar. Við bendum á fordæmisgildi þeirrar ákvörðunar að styrkja einstaka aðila um 10 milljónir króna og spyrjum hvort okkar skulduga sveitarfélag muni rísa undir því fordæmi. Við hefðum viljað styrkja þetta ágæta verkefni með lægri upphæð og hefðum talið það ábirgari afstöðu gagnvart sveitarsjóði Rangárþings ytra.
Heimir Hafsteinsson. Þröstur Sigurðsson. Viðar Steinarsson."
Þannig lýtur það nú út. Málið hefur ekki enn verið afgreitt í sveitarstjórn Rangárþings eystra en ég ætla ég að vona að þeir komi skynseminni inn í þetta mál.
Hvað finnst ykkur??
Kveðja Viðar.
05 mars 2006
Í minningu Oddaverja hinna seinni
Þá er það orðið ljóst að ekki verður boðið fram undir merkjum Oddaverja í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Ég sagði frá því í pistli 22. febrúar hér á síðunni að haldinn var Oddaverja fundur í Árhúsum. Eins og ég sagði frá þar þá var mikill hugur í fólki og eindrægni. Málin voru sett í þann farveg að stjórn var falið að skipa uppstillingarnefnd sem átti að hafa það umboð að koma fram með tillögu að uppstillingu á framboðslista. Áður en að stjórnin hafði ráðrúm til að koma saman til að setja uppstillingarnefnd á laggirnar þá fór af stað atburðarás sem gerði það að verkum að trúnaðarbrestur kom upp í samstarfinu þar sem jafnréttismál spiluðu stórt hlutverk. Síðastliðið miðvikudagskvöld var svo haldinn "krísufundur" þar sem reynt var að sætta sjónarmið. Það tókst ekki og sögðu hreppsnefndarfulltrúarnir Þröstur Sigurðsson og undirritaður Viðar Steinarsson sig þá þegar frá frekara samstarfi og sömu leið gekk svo Heimir Hafsteinsson s.l. föstudag.
Þetta er í sjálfu sér mjög dapurleg en um leið furðuleg niðurstaða, því frá mínum bæjardyrum þá hefur samstarfið gengið mjög vel.
En svona er það og nú er komin upp ný staða í framboðsmálum í Rangárþingi ytra miðað við það sem áður var að stefnt.
En í hverju skipsbroti felast ný tækifæri þannig að þegar upp er staðið er ég viss um að út úr þessu mun koma eitthvað jákvætt.
Ég óska þeim Heimi og Þresti velfarnaðar í því sem þeir gera í framhaldinu og þakka þeim gott samstarf á kjörtímabilinu.
Hvað sjálfan mig varðar er allt óráðið, en ekki líst mér á að hér verði bara val um að kjósa B eða D.
Ef þið eruð sama sinnis og viljið vinna að meira framboði þá hafið endilega samband í síma 8621957 eða sendið tölvupóst á kaldbakur@emax.is nú og svo eru það commentin hér að neðan.
Já pólitíkin býður upp á margt óvænt, ekki bara hjá Oddaverjum. Frétt dagsins var skyndilegt brotthvarf Árna Magg.
Sæl að sinni, Viðar.
04 mars 2006
Skipulagsdagur
Mætti á skipulagsfundinn um deiliskipulag nýs hesthúsahverfis annarsvegar og um hugmyndavinnu vegna skólareits.
Það var mjög góð mæting sérstaklega á fyrri liðinn og var fólk duglegt að koma með hugmyndir og ábendingar.
Varðandi endanlega útfærslu, á annars mjög álitlegu deiliskipulagi hesthúsahverfis, er mikilvægt að skoða betur nokkur atriði að mínu mati.
- Þar er fyrst að nefna að skýra þarf betur aðkomu að svæðinu frá þorpinu og þá helst hvað varðar gönguleið með undirgöngum undir þjóðveginn.
- Sýna þarf með ákveðnari hætti hvernig reiðleiðir að og frásvæðinu eru hugsaðar.
- Ahuga þarf nánar hvort staðsetning reiðhallar er á hentugasta stað með tilliti til nýtingar möguleika í tengslum við Gaddstaðaflatasvæðið.
- Huga þarf betur að þörfum atvinnumanna varðandi stærð húsa og lóða og byggingamöguleika sem og varðandi beitarmöguleika.
Hvað skólareitinn varðar komu fram margar góðar hugmyndir um framtíðar fyrirkomulag. Margt bar á góma m.a. hugmynd Lovísu Sig að flytja keikskólann af skólareitnum og byggja nýjan við eða í nágrenni við Lund. Þannig myndu íbúar byrja og enda sinn feril á sama stað eins og Bjarni Alla orðaði það svo vel. Sigurgeir skólastjóri vildi að gert verði ráð fyrir að framhaldsskóli verði byggður á skólareitnum og Ragnar Páls vildi að þegar skipulagið verði unnið þá hugsi menn verulega til framtíðar og varaði sérstaklega við því að fórna svæðinu norðan íþróttavallar. Margt fleira var rætt og nú er boltinn hjá okkur í sveitarstjórn að bretta upp ermar og vinna málið áfram.
Ef þið viljið koma á framfæri einhverjum ábendingum til sveitarstjórnar þá megið þið skilja eftir skilaboð á þessari síðu og ég mun koma þeim áfram.
En svona í lok þessa pistils er rétt að þakka gott framtak við þessa kynningu sem er mjög góð nýbreytni hjá byggingafulltrúa og bygginganefnd.
Sæl að sinni, Viðar.
03 mars 2006
Fuglaflensa
Vegna fyrirspurna sem ég hef fengið um hvort sveitarstjórn eða búfjáreftirlitsnefnd muni koma á framfæri upplýsingum um viðbrögð vegna hugsanlegra fuglaflensutilfella hér, þá er því til að svara að það hefur ekki verið rætt enn sem komið er en verður væntanlega ef hættustig verður hækkað hér á landi. Vil benda á ágætar upplýsingar um fuglaflensuviðbrögð sem eru á vef Búnaðarsambands Suðurlands.
Tengill inn á síðu Búnaðarsambandsins er hér á síðunni til vinstri.
Kveðja Viðar.
02 mars 2006
Áminning um skipulagsfund.
Munið kynningu á deiliskipulagi nýrrar og glæsilegrar hesthúsabyggðar á Hellu sem verðu í Grunnskólanum á Hellu laugardaginn 4 mars n.k. frá kl. 11-13. Um er að ræða hverfi fyrir 1500 hross með miklum stækkunarmöguleikum.
Einnig verða kynntar hugmyndir um breytingar á skólareit við grunnskólann á Hellu.
Komið, kynnið ykkur og komið með hugmyndir í púkkið.
Sæl að sinni Viðar.
Ljóð ort í tilefni dagsins
Ég man enn þann dag sem hann gerst hafi í gær
þegar hjarta mitt tók af mér ráð.
Ég vissi ekki í heiminn hérna eða fjær,
því minn hugur var lostinn í bráð.
Og sólin hún skein allt var bjart og svo ljúft,
og söngfuglar sungu um dal og um hlíð.
Þennan dag var ég numinn og mér fannst það svo sælt,
ég var numinn og verð alla tíð.
Kveðja Viðar