15 mars 2006

 

Eftirköst Davíðskunnar

Það hlýtur að vera flaggað í hálfa í Seðlabankanum þessa dagana og Valhöll líka.
Nú er Íslenskt þjóðfélag að upplifa timburmennina eftir valdatíð Davíðs. Ég spái því að eftirskjálftar þeirra stóru skjálfta, sem nú ríða yfir þjóðfélagið og munu gera á næstu mánuðum, muni síðan allt að því "tremma Sjálfstæðisflokkinn í hel" og það finnst mér mikil synd.
Framan af var Sjálfstæðisflokkurinn frjálslyndur flokkur hægra megin að miðju. Á síðasta áratug síðustu aldar varð flokkurinn hins vegar fámennri frjálshyggjuklíku að bráð sem sveigði hann yst til hægri og tók Íslenskt þjóðfélag með sér í það ferðalag. Við erum að gjalda fyrir það og verðum enn um sinn.

Það hefur í langan tíma verið reynt að stagla ofan í þjóðina að hér sé góðæri og stöðugleiki, mikið efnahagsundur á ferð.

Ráðamenn hafa verið á hnjánum í BNA við að halda hernum hér án þess að vita af hverju og algerlega á móti vilja BNA manna. En alltaf hefur þjóðinni verið sagt að málið sé í traustum höndum "persónulegra tengsla" ráðamanna við BNA stjórn m.a. vegna stuðnings við Íraksstríð.

Ríkislögreglustjóra er sigað berfættum og vettlingalausum á bisnessmenn sem voru "Valhallarklíkunni" ekki að skapi líklega til að halda "aga í hernum" eins og góði dátinn Sveik orðaði það.

Fréttir undanfarinna vikna hafa hins vegar verið undirlagðar af spám aðallega erlendis frá um fallvaltleika Íslensks efnahagslífs.
Verðbréf hafa fallið í verði og gengi krónunnar lækkað. Öll viðvörunarljós efnahagslífsins virðast blikka í rauðum lit.

Svo kemur þessi miðvikudagur með sín stóru tíðindi.

Herinn burt og Baugsmenn með geislabaug frá héraðsdómi.
Eftir standa stjórnarherrar á nýju fötunum keisarans einum fata frammi fyrir þjóðinni og það gefst á að líta eða hitt þó heldur.

En eins og fyrri daginn þá má segja að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott.

Það er sem betur fer bjart fram undan hjá ríkri og dugmikilli Íslenskri þjóð þrátt fyrir að hafa lent á þessu frjálshyggju kendiríi.

Góðar stundir. Viðar.


Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++