19 mars 2006

 

Framboðsmál í Rangárþingi ytra.


Sæl nú.
Þá eru línur eitthvað að skýrast í framboðsmálum í Rangárþingi ytra.
Framsóknarmenn segjast vera að ljúka við samsetningu á lista og hafa hafnað aðkomu að sameiginlegu framboði miðju og vinstrimanna hér.
Ég vona, og er þá að hugsa um bæði sóma Framsóknarmanna og lýðræðið, að þeir sýni meiri ábyrgð en þeir hafa gert á yfirstandandi kjörtímabili. Það hefur því miður of oft komið fyrir að fulltrúi Framsóknarmanna hafi mætt á hreppsnefndarfundi með umlagið utan um fundargögn lokað og það kalla ég vanvirðu við kjósendur og lýðræðið.
Sjálfstæðismenn eru komnir með þá sem taka munu þátt í prófkjöri þar á bæ. Ljóst er að þar mun verða mjög harður slagur um efstu sæti þar sem 3 hafa sett stefnuna á 1. sætið og fleiri en einn um næstu sæti þar fyrir neðan. Athygli vekur að af þeim sem sækjast eftir efstu sætum þá vekur athygli að verulega margir frambjóðenda eru ættaðir frá Ægissíðu. Þannig að það stefnir kannski í að þar verði um Ægissíðu slagsíðu að ræða en það kemur nú allt í ljós.
Hitt er alveg ljóst að um ákveðið uppgjör verður að ræða hjá Sjálfstæðismönnum sem hefur verið undirliggjandi um langan tíma.
Vonandi koma allir heilir frá þeim hildarleik en það sem er mikilvægast er að það bitni ekki á sveitarfélaginu ef illa fer.

Því segi ég við ykkur íbúa Rangárþings ytra gefum sjálfstæðismönnum frí til að jafna málin í eigin herbúðum og í leiðinni láta á reyna hvort ekki séu aðrir möguleikar í stöðunni.
Ekki er af svo glæsilegum árangri að státa hjá þeim á undangengnum árum og áratugum það sýnir staða sveitarfélagsins fyrr og nú svo hver er áhættan önnur en von um berti tíð.

Það er mikil þörf á að breytingar verði á stjórn okkar ágæta sveitarfélags til að leysa það úr læðingi stöðnunar og illvígra persónulegra deilna innan Sjálfstæðisflokksins. Sveitarfélagið þarf ekki og á ekki að vera í herkví slíks ástands. Breytum því.

Ég boða hér með að hafinn er undirbúningur að framboði samvinnu, jafnaðar og vinstrimanna í okkar sveitarfélagi. Þegar hefur verið rætt við stóran hóp fólks og undirtektir hafa verið góðar og hugur í fólki.
Ég hef bent fólki á að hafa samband við þann sem hér skrifar ef það hefur ábendingar um fólk eða málefni og hefur því verið vel tekið og vil ég hér með enn á ný hvetja íbúa til að vera í sambandi.
Sæl að sinni, Viðar.

Comments:
Talandi um persónulegar illdeilur. Afhverju splundruðust Oddaverjar? Það skyldi þó ekki hafa verið út af persónulegum illdeilum??

Spurning að fara varlega í stórar staðhæfingar....
 
Kæri nafnlaus.
Engar persónulegar illdeilur eru eða hafa verið milli mín og þrastar Sigurðssonar og Heimis Hafsteinssonar. Ég hef einnig átt mjög gott persónulegt samband við fulltrúa meirihluta sveitarstjórnar.
Um þetta geta þessir fulltrúar allir vitnað.
Mismunandi skoðanir á einstökum málum eru allt annað mál.
 
Skoða bara www.oddaverjar.is fundargerðir, þar sést að um persónulegar illdeilur var ekki að ræða, heldur braut á jafnréttismálum fyrst og fremst og svo þeirri kröfu um fyrsta sætið sem nú hrjáir sjálfstæðismenn
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++