05 mars 2006

 

Í minningu Oddaverja hinna seinni

Komið þið sæl.
Þá er það orðið ljóst að ekki verður boðið fram undir merkjum Oddaverja í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Ég sagði frá því í pistli 22. febrúar hér á síðunni að haldinn var Oddaverja fundur í Árhúsum. Eins og ég sagði frá þar þá var mikill hugur í fólki og eindrægni. Málin voru sett í þann farveg að stjórn var falið að skipa uppstillingarnefnd sem átti að hafa það umboð að koma fram með tillögu að uppstillingu á framboðslista. Áður en að stjórnin hafði ráðrúm til að koma saman til að setja uppstillingarnefnd á laggirnar þá fór af stað atburðarás sem gerði það að verkum að trúnaðarbrestur kom upp í samstarfinu þar sem jafnréttismál spiluðu stórt hlutverk. Síðastliðið miðvikudagskvöld var svo haldinn "krísufundur" þar sem reynt var að sætta sjónarmið. Það tókst ekki og sögðu hreppsnefndarfulltrúarnir Þröstur Sigurðsson og undirritaður Viðar Steinarsson sig þá þegar frá frekara samstarfi og sömu leið gekk svo Heimir Hafsteinsson s.l. föstudag.
Þetta er í sjálfu sér mjög dapurleg en um leið furðuleg niðurstaða, því frá mínum bæjardyrum þá hefur samstarfið gengið mjög vel.
En svona er það og nú er komin upp ný staða í framboðsmálum í Rangárþingi ytra miðað við það sem áður var að stefnt.
En í hverju skipsbroti felast ný tækifæri þannig að þegar upp er staðið er ég viss um að út úr þessu mun koma eitthvað jákvætt.
Ég óska þeim Heimi og Þresti velfarnaðar í því sem þeir gera í framhaldinu og þakka þeim gott samstarf á kjörtímabilinu.
Hvað sjálfan mig varðar er allt óráðið, en ekki líst mér á að hér verði bara val um að kjósa B eða D.
Ef þið eruð sama sinnis og viljið vinna að meira framboði þá hafið endilega samband í síma 8621957 eða sendið tölvupóst á kaldbakur@emax.is nú og svo eru það commentin hér að neðan.
Já pólitíkin býður upp á margt óvænt, ekki bara hjá Oddaverjum. Frétt dagsins var skyndilegt brotthvarf Árna Magg.
Sæl að sinni, Viðar.

Comments:
Hvar er það sem að þú skrifaðir um Heimi Hafsteinsson um að hann væri að fara í framboð hjá D-lista.
Þú ert orðinn eins og Össur Skarphéðinsson, setur inn á síðuna þína og fjarlægir það síðan.
 
Sigurður hver á þessa síðu og ræður þar með hvað birtist og hvenær. Ekki amalegt fyrir Viðar að vera líkt við Össur.
 
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
 
Sigurði langar að fá Heimi í prófkjörið en ég held nú að hann þori ekki að taka þátt í því.
Annars hljótum við að tak fagnandi á móti sem flestum til að taka þátt ekki síst tíndum sauðum.
 
Sælir
Auðvitað veit ég hver heldur úti þessu vefsvæði en það er aðgengilegt öllum sem hafa aðgang að Internetinu. Þegar þannig er þá ætlast maður til að skrifin séu trúverðuleg en eiga ekki að einkennast af hringlandahætti eins og þessum. Maður með reynslu eins og Viðar, hefur af opinberri stjórnsýslu, á að vita að það er trúverðuleiki sem skiptir máli þegar kemur að samskiptum við kjósendur kemur.
 
"...fór af stað atburðarás sem gerði það að verkum að trúnaðarbrestur kom upp í samstarfinu þar sem jafnréttismál spiluðu stórt hlutverk."

Afhverju þetta loðna orðalag? Hvað gerðist í raun og veru? Hver braut trúnað og eigum við ekki skilið að vita hvernig það gerðist? Er verið að fela eitthvað? Þora menn ekki að segja hvað gerðist í raun og veru?
 
Vil benda á að Oddaverjar eru enn á lífi, sjá www.oddaverjar.is þar koma fram meiri upplýsingar um trúnaðarbrestinn svokallaða. Tvær fundargerðir Oddaverja eru birtar þar.
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++