11 mars 2006

 

Pólitísk "rétthugsun".

Sælt veri fólkið.
Nokkrar umræður hafa að undanförnu verið um fyrirbæri sem kallast pólitísk "rétthugsun". Þessi umræða hefur komið upp m.a. vegna þess að nýlega hefur verið gerð í BNA mynd um ævi Joe McCarty sem var þingmaður þar vestra snemma á sjötta áratugnum og vann það sér helst til frægðar að komast til frama í pólitík með lygum og prettum og reyna síðan að bjarga sínum pólitíska ferli með því að gerast kommahatari.
Og nota bene hann náði hljómgunni meðal margra BNA manna í ótrúlega langan tíma. Svo fór þó að lokum að augu manna opnuðust gagnvart McCarty og nú er saga hans einn svartasti blettur í stjórnmálasögu BNA. Myndin verður væntanlega sýnd hér áður en langt um líður og hvet ég alla til að sjá hana því efni hennar hlýtur að vera öllum hollt til umhugsunar.

Inntakið í pólitískri rétthugsun og McCarty isma er að stimpla alla þá sem voga sér að opna munninn, eða stinga niður penna, til að koma á framfæri gagnrýni á rikjandi skoðun, ástand og stjórnvöld.

McCarty stimplaði alla kommúnista sem gagnrýndu Bandarískt þjóðfélag og stjórnvöld á þeim tima og lenti fjöldi fólks í miklum hremmingum af hans völdum.
Ef við setjum pólitíska "rétthugsun" inn í okkar nútíma þá sjáum við hennar víða stað. Allir sem fylgjast með Íslenskri pólitík þekkja dæmin.
Hver kannast ekki við viðbrögð stjórnvalda við gagnrýni á t.d. skattamál,Öldrunarmál,stóriðjumál, einkavæðingu,öryrkjamál og fl.
Ef gagnrýnin er frá fræðimönnum eða hagsmunahópum, eins og félagi eldri borgara, Öryrkjabandalaginu eða öðrum, þá svara stjórnvöld að annað hvort kunni menn ekki að reikna eða þá misskilja og ef það ekki dugir þá er því slengt fram að viðkomandi sé í pólitík.
Nú ef gagrýnin kemur af hinu pólitíska sviði þá eru menn jú bara á móti öllu, kommar eða kratar og ef ekki vill betur afturhaldskommatittir.
Svona er nú umræðan mjög í McCarty´s anda á Íslandi í dag.

Ég ætla að lokum að minnast á hvernig pólitísk "rétthugsun" birtist mér í okkar litla samfélagi hér í okkar sveitarfélagi.
Ein hlið þess snýr að því hve erfitt er að fá fólk til að bjóða sig fram til að starfa að sveitarstjórnarmálum hér. Þegar talað er við fólk um að ganga fram fyrir skjöldu þá er það mjög oft hrætt við að styggja ríkjandi öfl sem hér í Rangárþingi ytra eru Sjálfstæðisflokkurinn. Hin pólitíska umræða hér gengur út á það að stimpla þá sem ganga gegn ríkjandi öflum og gera þá tortryggilega. Heyrum við ekki að minnihlutinn sé á móti ÖLLU-JÁ ÖLLU. Ef sá sem gagnrýnir er ekki sjálfstæðismaður þá er ekki að marka og hann er bara á móti, er kommi jafnvel krati eða frammari sem er þó skárra því þeir eru í útrýmingarhættu og þess vegna ekki eins hættulegir.
Og ef einhverjir merktir D fara út af línunni og jafnvel í samstarf við vafasama aðila þá er litið á þá sem pólitískt holdsveika meðan á því samstarfi stendur.
Annar flötur á þessu þankagangi er að fólk er hreinlega hrætt við að missa vinnu vegna"óhefðbundinna" pólitískra skoðana ef það lætur þær uppi. Ég get persónulega vitnað um að slíkt er fyrir hendi hér.
Eins og þið flest vitið var ég um tíma að vinna fyrir Rangárbakka Hestamiðstöð Suðurlands en hætti því fyrir um ári síðan. Starf sem ég hafði mikla ánægju af og áhuga á.
Eina ástæða þess að ég sagði þessu starfi lausu var að það barst athugasemd til stjórnarmanna um að starfsmaður Rangábakka væri ekki af réttum pólitískum lit.
Ég tek það skýrt fram að stjórn Rangárbakka stóð heilshugar á bak við mig þegar þetta kom upp en ég taldi mér ekki sætt lengur vegna þess hugsanlega möguleika að ég myndi skaða félagið í sókn þess í opinbert fjármagn.
Þannig að ég veit af eigin reynslu að þessi ömurlegi þankagangur er til hér og ótti fólks vegna þessa því ekki ástæðulaus.
Þessum hugsunarhætti verðum við að breyta því þetta er ein af helstu ástæðum þess að hér ríkir stöðnun en ekki framfarir. Þar sem eru þröskuldar fyrir gagnrýna hugsun og og hugarfar manna mótast af pólitískri "rétthugsun" verður slíkt ástand viðvarandi.
Frjáls hugsun er það sem gerir hvern mann sjálfstæðan einstakling, hugsum um það.
Sæl að sinni Viðar.

Comments:
Ég fæ ekki betur séð en að þú fallir í sömu gryfju og þú telur aðra vera í. Ert þú ekki sjálfur að stimpla með þessu tali þínu?

Lítið dæmi:
Þú segir: "Hin pólitíska umræða hér gengur út á það að stimpla þá sem ganga gegn ríkjandi öflum og gera þá tortryggilega."

Það er einmitt það sem þú ert að reyna að gera í þessum pistli þínum, reyna að gera sjálfstæðismenn og stuðningsmenn þeirra tortryggilega.

Ég gæti nefnt fleiri dæmi.
 
Sæll Gunnar.
Særði ég þitt sjálfstæðis hjarta?
Það var ekki meinigin heldur að vekja athygli á og fá umræðu um ástand sem ég hef sannreynt að er til staðar hér í okkar kæru sveit.
Það þýðir þó ekki að ALLIR séu undir sömu sök seldir og ég er viss um að þú ert málefnalegur í þinni afstöðu Gunnar. En það sem fámennur kjarni hamrar á ár og síð hefur tilhneigingu til að verða að "sannleika" hjá allt of stórum hópi fólks, það vitum við báðir.
Kveðja Viðar.
 
Það getur vel verið að þú hafir sært mitt "sjálfstæðishjarta" með þessum pistli. En ég held að þú særir mannorð þitt meira með svona tali. Þú hlýtur að vera að gera eitthvað rangt fyrst þú ert með svona lítið fylgi á bakvið þig. Það vitum við báðir.

Góðar stundir.
 
Sæll Gunnar.
Mér þykir vænt um að þér skuli umhugað um mitt amnnorð en held að þú metir "svona tal" út frá þröngum sjónarhóli flokkslínunnar og tel að þú gerir þig ekki eins marktækan fyrir bragðið.
Ég hef ekki áhyggjur af því hvort ég næ mér í kjörfylgi eður ei með vangaveltum mínum á þessari síðu enda er alls óvíst um hvort ég verði í framboði yfirleitt.
Ég er afar sáttur við minn pólitíska feril, bæði hvað varðar fylgi og málefni.
Ekki láta pistlana mína fara í pirrurnar á þér Gunnar, það veldur bara vanlíðan.
Gaman væri að vita hvort þú ert sveitungi og hvaða álit þú hefðir á málefnum sveitarfélagsins og stjórnarfarinu eins og það hefur verið.
Er þér annars ekki frjálst að tjá þig um það?
Bestu kveðjur Viðar.
 
Ert þú nú ekki orðinn svolítið "paranojaður" í samsæriskenningunum? Hver ætti annars að banna mér að tjá mig? Er það þannig sem hlutirnir ganga fyrir sig í þínum heimi? Í mínum heimi bannar mér enginn að tjá mig eða að gera nokkuð það sem ég vil gera svo lengi sem það er innan ramma laganna. Að láta sér detta annað í hug er hreinlega bilun. Ég er þó ekki með því að halda því fram að þú sért bilaður þó svo að það mætti örugglega skilja það þannig.

Ég er ekki sveitungi og hef ekki vit á málefnum sveitafélags þess sem þú býrð í. Þetta sem ég er að kommenta hér er eingöngu út frá þessum pistli sem hér er skrifaður að ofan. Lengra nær það ekki þó svo að þig langi til að halda að hér sé á ferðinni gríðarlegt pólítískt plott.

Og að lokum vil ég biðja þig að láta skrif mín hér ekki fara í taugarnar á þér.


Með vinsemd og virðingu, Gunnar.
 
Sæll enn og aftur Gunnar.
Ég var nú bara að "djóka" í þér og þykir sem þú sér nú full hníflóttur vegna þessara skoðanaskipta okkar. Kommentin þín fara alls ekki í taugarnar á mér þvert á móti hef ég haft af þeim gaman og vertu velkominn að lesa vangavelturnar mínar sem oftast.
Kveðja Viðar.
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++