28 apríl 2006

 

Framboðslistinn klár


Sæl nú.
Í kvöld var haldinn fundur um framboðsmál í Brennu þar sem ákveðið var að bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnakosningum.
Mikill hugur var í fólki og er markið sett á að ná inn þremur mönnum í sveitarstjórn. Listinn verður formlega kynntur og samþykktur mánudaginn 1. maí n.k. í Brennu ásamt málefnaskrá listans. Meðfylgjandi mynd er af þeim sem skipa fjögur efstu sæti framboðslistans. Í hvaða röð þetta fólk skipar listann gef ég ekki upp á þessari stundu til þess að halda ykkur forvitnum aðeins lengur.
Góða nótt, ykkar einlægur Viðar.
ES. Lítið inn á vef k-lista framboðsins, tengillinn er nýr hér til hliðar og þá sjáið þið hverjir skipa sex efstu sæti listans.

21 apríl 2006

 

Erfðabreytt veröld

Gott kvöld.
Var að vafra á Suðurland.is og sá þá þessahttp://www.sudurland.is/news.asp?View=Article&ID=2597 grein um ræktun á erfðabreyttu byggi sem samkvæmt því sem þar kemur fram er stunduð í Gunnarsholti. Lesið hana endilega.
Það sem ég spyr mig eftir lestur greinarinnar er eftirfarandi:

Fróðlegt væri að fá svör við þessum spurningum á málefnalegan og rökstuddan hátt.

Vaxandi áhyggjur hafa komið fram um að farið sé offari við að breyta erfðaþáttum lífvera og að þar ráði meira kapp en forsjá með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Leyfi mér að birta hér smá tilvitnun í áðurnefnda grein:

"Hlutlægar upplýsingar hefur skort um þessi mál, því nær engin opinber umræða hefur farið fram og stjórnvöld virðast ekki hafa kynnt sér reynslu annarra þjóða af erfðabreyttri framleiðslu. Í Norður Ameríku hefur erfðabreytt ræktun mengað mjög út frá sér og auk þess leitt til aukinnar eiturefnanotkunar. Læknar hafa lýst áhyggjum af því að aukin tíðni ofnæmis kunni að tengjast neyslu erfðabreyttra matvæla. Heilsurannsóknir á dýrum benda til skaðsemi erfðabreyttra afurða, t.d. breytinga á líffærum og æxlismyndunar." Tilvitnun lýkur.

Í ljósi þess að uppi eru verulegar efasemdir um að tilraunir með að erfðabreytingar lífvera séu skaðlausar umhverfinu þá hlýtur að vera mjög varasamt að setja slíkt af stað í Íslenskri náttúru með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Kynnið ykkur málið.

Góða nótt Viðar.


20 apríl 2006

 

Gleðilegt sumar.


Sæl verið þið og gleðilegt sumar og hafið þökk fyrir veturinn.
Sumardagurinn fyrsti er sérstakur dagur fyrir Íslendinga, kannski sá dagur ársins sem við fögnum mest. Dimmur veturinn að baki með sitt myrkur en framundan er vornóttin eilífa björt sem dagur. Þetta er tími vonar og rómantíkur, tími framkvæmda og bjartsýni sem er eins og inngróin í þjóðarsálina. Og það væri vel skiljanlegt að genin hefðu meðtekið umhverfið og aðstæðurnar í gegn um aldirnar til að aðlaga okkur og gera okkur fær um að lifa af í þessu fagra en harðbýla landi. Því þó að við, sem nú lifum, róum í velsæld ár og síð þá var það ekki svo fyrr á öldum. Oft á tíðum snérist baráttan um að lifa veturinn langa og stundum harða af. Og margar eigum við sögurnar af harðri lífsbaráttu þjóðarinnar þar sem margir urðu að láta í minni pokann fyrir náttúruöflunum. Fyrir það fólk sem þá lifði var sumarkoman því ekki bara von um betri tíð og bjarta daga heldur vonin um lífið sjálft fyrir sig og sína. Þetta er okkur hollt að hugleiða um leið og við sporðrennum enn einni brauðtertunni eða lambalærinu.
Sumarkveðja Viðar.

08 apríl 2006

 

Stjórnsýsluhús og Krónubúð.

Sæl nú.
Á hreppsnefndarfundi sem haldinn var 28. mars sl. var samþykkt eftirfarandi:
Beint úr fundargerð hreppsnefndar>
"4. Suðurlandsvegur 1 á Hellu - kaup og ráðstöfun:
Sveitarstjóri greindi frá stöðu mála og lagði fram tillögu að samkomulagi milli Rangárþings ytra og Kaupáss hf. um kaup á húseigninni Suðurlandsvegi 1, Hellu.

Gengið er út frá því að Kaupás hf. nýti forkaupsrétt vegna tilboðs í húseignina Suðurlandsveg 1 á Hellu og selji hana til Rangárþings ytra. Gerður verði leigusamningur um verslunarrými fyrir Kaupás hf. á milli fyrirtækisins og Rangárþings ytra sem verði til 10 ára með uppsagnar- og endurskoðunarrétti að fimm árum liðnum að hálfu aðila.

Samþykkt með 7 atkvæðum, 2 sitja hjá (HH. VHS.).

Bókun:
Bókun við lið nr. 4 í dagskrá fundarins. Varðar samning við Kaupás hf. um nýtingu forkaupsréttar á húseigninni Suðurlandsvegi 1 á Hellu og leigusamning milli Rangárþings ytra og Kaupáss hf. um leigu á verslunar- og geymslurými til allt að tíu ára, sem er óskilgreint að stærð. Undirritaður situr hjá við afgreiðslu málsins vegna þvingandi og fordæmisgefandi ákvæða í samningnum, sem eru vegna forkaupsréttar Kaupáss hf. á húseigninni Suðurlandsvegi 1 og varða skilyrði um langan leigutíma og lágar leigugreiðslur ásamt forleigu og forkaupsrétti. Undirritaður er hinsvegar samþykkur kaupum á húseigninni sem slíkri undir stjórnsýslu sveitarfélagsins og ákvæðum um að hér komi lágvöruverðsverslun.
Viðar H. Steinarsson."

Þannig er þetta bókað í fundargerð hreppsnefndar og ætla ég nú að fjalla um þennan gjörning í nokkrum orðum frá mínum bæjardyrum.
Kaupin á húseigninni Suðulandsvegi 1 er að mínu mati skynsamleg fjárfesting fyrir sveitarfélagið og hef ég bent á þennan möguleika oft áður sem vænlegan kost sem aðstöðu fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þetta var hins vegar ekki athugað að hálfu hreppsyfirvalda fyrr en boð bárust frá KB banka fyrir skömmu um að ónafngreindur aðili hyggðist bjóða í Suðurlandsveg 1.
Þá fyrst var gert tilboð í húsið af Rangárþingi ytra en því var ekki tekið en tilboði hins ónafngreinda var hins vegar tekið. Var þá talið að úti væri um málið. Svo var hins vegar ekki því boð bárust frá Kaupási hf um hvort Rangárþing ytra vildi ganga inn í forkaupsrétt sem það fyrirtæki ætti í húseigninni Suðurlandsvegur 1. Þarna var um að ræða að ganga inn í tilboð áðurnefnds ónafngreinds aðila með Kaupás sem millilið og með fylgdi hugmynd að leigusamningi við Kaupás hf á miðhæð og kjallara Suðurlandsvegar 1 til tíu ára.
Þetta varð úr og kaupir sveitarfélagið húseignina á rúmar sjötíu milljónir með áföllnum kostnaði vegna þess að Kaupás er milli liður. Sá leigusamningur sem fylgir þessum kaupum við Kaupás hf er til tíu ára og hefur Kaupás mest allan kjallara og miðhæð hússins undir sína starfsemi á þeim tíma. Inni í þessum samningi eru ákvæði um að Kaupás skuli setja hér upp Krónuverslun þegar "miðrými" verður opnað.(miðrými er fyrirhuguð tengibygging milli Suðurlandsvegar1 og Verkalýðshúss sem byggð verður af Rangárþingi ytra og húsfélagi Verkalýðshúss. Hvenær þetta húsnæði verður tilbúið er ekki vitað)
Þegar við undirskrift samnings mun húsaleiga Kaupáss hf lækka frá því sem nú er og þegar Krónubúð opnar mun húsaleiga falla niður í 2 ár og næstu þrjú ár þar á eftir verður leiga mjög lág. Eftir það mun leiga vera helmingur af því sem nú er út samningstímabilið alls 10 ár.
Auk þessa kveður samningurinn á um að Kaupás hf hafi forleigu og forkaupsrétt á umræddu leiguhúsnæði og einnig að ef gera þarf breytingar á leigushúnæðinu í kjallara þá borgar Rangárþing ytra það.
Hægt er að endurskoða samninginn eftir fimm ár frá undirritun hans.

Þannig er þetta nú í pottinn búið bæði gott og vont og vil ég nú greina þar á milli.
Fyrst það góða:
  1. Viðunandi húsnæði fyrir stjórnsýsluna á góðum stað.
  2. Kaupverð ásættanlegt á húsinu í heild.
  3. Hugmyndir um tengibyggingu.
  4. Að fá Krónuverslun.

Þá það slæma:

  1. Langur leigusamningur við Kaupás.
  2. Krónuverslun kemur ekki strax við undirritun.
  3. Niðurfelling og afsláttur af leigu er of mikill og til of langs tíma, nær í raun til alls leigutímabilsins þ.e. 10ára.
  4. Ákvæði um stórfellda eftirgjöf á leigu flokkast sem styrkur til einstaks fyrirtækis og er þar með fordæmisgefandi. (gæti í þessu tilfelli verið á bilinu 2-4 milljónir króna á ári eða yfir tuttugu milljónir á samningstímabilinu)
  5. Forkaups og forleiguréttur Kaupáss að mjög stórum hluta þeirrar húseignar sem keypt er.

Það sem mér finnst verst er að ekki skuli vera breytt í krónubúð nú þegar og síðan verður vandi hjá sveitarfélaginu að fylgjast með að Kaupás standi við ákvæði um Krónubúð þegar þar að kemur í svo langan samningstíma. (verðlagseftirlit Rangárþings ytra)

Svo er ein ágæt spurning sem athugull sveitungi kom með:

Hvað ef Bónus skyldi banka á dyrnar og biðja um sömu fyrirgreiðslu hjá Rangárþingi ytra EÐA ef Bónus mætti á Hvolsvöll upp á eigin reikning?????

Hvað þá!???

Góð spurning en svona er þetta í pottinn búið og nú getið þið sjálf vegið þetta og metið.

Er hér um að ræða meiriháttar ótvírætt og óumdeilt framfaramál eins og sigurvegari prófkjörs D-listans segir og ætlar að vinna kosningarnar með --EÐA er þessi samningur sýnd veiði en ekki gefin, veisla þar sem þú veist ekki hverjar veitingarnar verða eða hvað þær kosta.

Já vel á minnst hver er heildarkostnaðurinn við pakkann þegar upp er staðið?

Svarið er að sá kosningavíxill er óútfylltur.

En við segjum bara að þetta reddast og vonandi verður það svo.

Sæl að sinni Viðar.


06 apríl 2006

 

Framsókn kynnir lista.

Gott kvöld.
Í gærkvöldi tilkynntu Framsóknarmenn sinn framboðslista til sveitarstjórnar kosninganna í vor.
Fínn listi hjá þeim og óska ég þeim til hamingju með hann. Athygli vekur hve Framsókn er lífleg hér á þessu svæði þar sem flokkurinn virðist vera í mjög mikilli tilvistarkreppu á landsvísu. Þetta á sér þó þær sögulegu forsendur að Rangárþing hefur ætíð verið rótgróið og sterkt vígi Framsóknar og það merkilega er að sú vígstaða virðist vera nokkuð góð enn í dag þó flokkurinn sé við það að hverfa t.d. á höfuðborgarsvæðinu.
Ég tel að þessi listi hafi alla burði til að gera góða hluti í kosningunum því hann hefur gott mannval og kynjahlutföll eru með ágætum í efstu sætum. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig listinn leggur upp sína málefnaskrá hvað varðar áherslur á hin ýmsu mál.
Ég vona að Framsókn gangi vel í sinni baráttu því það er mikilvægt til þess að hægt sé að koma íhaldinu frá völdum hér í vor og það er megin málið.
Við vitum það nefnilega öll að þegar eitthvert stjórnmálaafl hefur verið mjög lengi við völd, eins og íhaldið hefur verið hér um slóðir og er farið að líta á sveitarfélagið sem sitt einka fyrirtæki þá er voðinn vís. Það slævir þá sem í þannig stöðu eru á þann veg að þeim finnst sem aðhald lýðræðisins sé þeim víðs fjarri og afleiðingin verður sú að hvatinn til að gera betur þverr. Þess sér greinilega stað í okkar sveitarfélagi.
Gefum því íhaldinu frí, sveitarfélagið þarf á því að halda og þeir þurfa þess líka sjálfir til að vita hvernig lýðræði virkar.
Góða nótt, Viðar.

 

Endastöð fráveitu á Hellu

Sæl nú.
Eitt mál hefur verið nokkuð í umræðu á vettvangi sveitarstjórnar undanfarið en það er staðsetning endastöðvar fráveitunnar á Hellu. Forstöðumaður umhverfissviðs og oddviti sveitarfélagsins fóru í leiðangur á síðasta ári til að skoða slík mannvirki á nokkrum stöðum á landinu bláa. Eftir þá ferð virðast þeir vera komnir með hugmynd sem þeir telja að gæti hentað fráveitunni á Hellu. Samkvæmt lýsingu þeirra félaga þá virðist þetta vera álitleg lausn sem slík.
Það sem mér líst ver á er sú staðsetning sem þeir félagar hafa nefnt fyrir slíkt mannvirki en það er hornið milli Árhúsa og Gaddstaðaflata. Ég tel að það sé stórvarasamt að setja endastöð fráveitunnar á Hellu svo nærri eða nánast inn í byggðinni. EKKERT er svo fullkomið í henni versu að það geti ekki bilað og með það í huga þá er þessi staðsetning algerlega óásættanleg.
Við búum það vel hér að við höfum nægt rými til að leysa þetta mál á miklu skinsamlegri máta og hugsað til framtíðar tel ég að við eigum að fara með endastöðina austur í Gaddstaðasíki og velja henni stað þar sem best þykir henta á því svæði.
Sæl að sinni, Viðar.

04 apríl 2006

 

Ægissíðu slagsíðan og meirihlutinn klofinn.

Sæl enn.
Það fór eins og mig grunaði að það yrði Ægissíðu slagsíða hjá íhaldinu.
Það hafði hins vegar ekki hvarflað að mér að "týndu sauðirnir" fengju svona móttökur. Hélt að það tilheyrði kristilegu hugarfari að fagna þegar slíkir ráfuðu heim í hjörðina á ný en ekki að setja þá í SLÁTURHÚSIÐ. Talandi um sláturhús þá hlýtur að vera glatt á hjalla þar eftir prófkjörið en vonandi verður sveitarfélaginu ekki stjórnað þaðan eftir kosningar.

Ég var hins vegar að koma af sveitarstjórnar fundi og þar urðu tíðindi!!!
Það sögulega gerðist að meirihlutinn klofnaði í afstöðu sinni til fjármögnunar á skólahúsnæði á Laugalandi. Það hafði áður verið ágreiningur milli meirihluta og minnihluta um hvor leiðin væri vælegri að gera leigusamning eða að sveitarfélagið fjármagnaði sjálft sem síðan endaði með því að meirihluti meirihlutans gekk í lið með minnihlutanum.
Til að komast að því hvað þar var á ferðinni þá er tengill beint inn á síðuna eftirfarandi og smellið á hann. http://www.rangarthingytra.is/?incid=3&bt=8&comm=1&log=290
Kveðja Viðar.

 

180 ára afmæli

Sæl nú.
Verð að segja ykkur frá skemmtilegri afmælisveislu sem ég mætti til í gær.
Næfurholts tvíburarnir þau Geir og Jóna urðu 90 ára og tóku á móti gestum að hætti hússins. Það er ekki kvíðvænlegt að eldast ef maður verður jafn ern og þau systkyn eru til orðs og æðis. Geir er þó orðinn hægferðugur vegna bilunar í hnjám. Ég þakka fyrir að fá að kynnast fólki eins og þeim systkynum og óska þeim innilega til hamingju með áfangann. Og reyndar má segja til hamingju Ísland að eiga slíkt fólk.
Sæl að sinni Viðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++