21 apríl 2006

 

Erfðabreytt veröld

Gott kvöld.
Var að vafra á Suðurland.is og sá þá þessahttp://www.sudurland.is/news.asp?View=Article&ID=2597 grein um ræktun á erfðabreyttu byggi sem samkvæmt því sem þar kemur fram er stunduð í Gunnarsholti. Lesið hana endilega.
Það sem ég spyr mig eftir lestur greinarinnar er eftirfarandi:

Fróðlegt væri að fá svör við þessum spurningum á málefnalegan og rökstuddan hátt.

Vaxandi áhyggjur hafa komið fram um að farið sé offari við að breyta erfðaþáttum lífvera og að þar ráði meira kapp en forsjá með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Leyfi mér að birta hér smá tilvitnun í áðurnefnda grein:

"Hlutlægar upplýsingar hefur skort um þessi mál, því nær engin opinber umræða hefur farið fram og stjórnvöld virðast ekki hafa kynnt sér reynslu annarra þjóða af erfðabreyttri framleiðslu. Í Norður Ameríku hefur erfðabreytt ræktun mengað mjög út frá sér og auk þess leitt til aukinnar eiturefnanotkunar. Læknar hafa lýst áhyggjum af því að aukin tíðni ofnæmis kunni að tengjast neyslu erfðabreyttra matvæla. Heilsurannsóknir á dýrum benda til skaðsemi erfðabreyttra afurða, t.d. breytinga á líffærum og æxlismyndunar." Tilvitnun lýkur.

Í ljósi þess að uppi eru verulegar efasemdir um að tilraunir með að erfðabreytingar lífvera séu skaðlausar umhverfinu þá hlýtur að vera mjög varasamt að setja slíkt af stað í Íslenskri náttúru með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Kynnið ykkur málið.

Góða nótt Viðar.


Comments:
Sæll Viðar.

Er ekkert að frétta af framboðsmálum hjá þér?
 
Það væri gaman að fá að vita hvað komi frá þér Viðar, fjölbreytt flóra í framboðsmálum er nauðsynleg!
 
Tek undir orð þess síðasta - nauðsynlegt að kjósendur hafi gott val.
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++