20 apríl 2006
Gleðilegt sumar.

Sæl verið þið og gleðilegt sumar og hafið þökk fyrir veturinn.
Sumardagurinn fyrsti er sérstakur dagur fyrir Íslendinga, kannski sá dagur ársins sem við fögnum mest. Dimmur veturinn að baki með sitt myrkur en framundan er vornóttin eilífa björt sem dagur. Þetta er tími vonar og rómantíkur, tími framkvæmda og bjartsýni sem er eins og inngróin í þjóðarsálina. Og það væri vel skiljanlegt að genin hefðu meðtekið umhverfið og aðstæðurnar í gegn um aldirnar til að aðlaga okkur og gera okkur fær um að lifa af í þessu fagra en harðbýla landi. Því þó að við, sem nú lifum, róum í velsæld ár og síð þá var það ekki svo fyrr á öldum. Oft á tíðum snérist baráttan um að lifa veturinn langa og stundum harða af. Og margar eigum við sögurnar af harðri lífsbaráttu þjóðarinnar þar sem margir urðu að láta í minni pokann fyrir náttúruöflunum. Fyrir það fólk sem þá lifði var sumarkoman því ekki bara von um betri tíð og bjarta daga heldur vonin um lífið sjálft fyrir sig og sína. Þetta er okkur hollt að hugleiða um leið og við sporðrennum enn einni brauðtertunni eða lambalærinu.
Sumarkveðja Viðar.