08 apríl 2006

 

Stjórnsýsluhús og Krónubúð.

Sæl nú.
Á hreppsnefndarfundi sem haldinn var 28. mars sl. var samþykkt eftirfarandi:
Beint úr fundargerð hreppsnefndar>
"4. Suðurlandsvegur 1 á Hellu - kaup og ráðstöfun:
Sveitarstjóri greindi frá stöðu mála og lagði fram tillögu að samkomulagi milli Rangárþings ytra og Kaupáss hf. um kaup á húseigninni Suðurlandsvegi 1, Hellu.

Gengið er út frá því að Kaupás hf. nýti forkaupsrétt vegna tilboðs í húseignina Suðurlandsveg 1 á Hellu og selji hana til Rangárþings ytra. Gerður verði leigusamningur um verslunarrými fyrir Kaupás hf. á milli fyrirtækisins og Rangárþings ytra sem verði til 10 ára með uppsagnar- og endurskoðunarrétti að fimm árum liðnum að hálfu aðila.

Samþykkt með 7 atkvæðum, 2 sitja hjá (HH. VHS.).

Bókun:
Bókun við lið nr. 4 í dagskrá fundarins. Varðar samning við Kaupás hf. um nýtingu forkaupsréttar á húseigninni Suðurlandsvegi 1 á Hellu og leigusamning milli Rangárþings ytra og Kaupáss hf. um leigu á verslunar- og geymslurými til allt að tíu ára, sem er óskilgreint að stærð. Undirritaður situr hjá við afgreiðslu málsins vegna þvingandi og fordæmisgefandi ákvæða í samningnum, sem eru vegna forkaupsréttar Kaupáss hf. á húseigninni Suðurlandsvegi 1 og varða skilyrði um langan leigutíma og lágar leigugreiðslur ásamt forleigu og forkaupsrétti. Undirritaður er hinsvegar samþykkur kaupum á húseigninni sem slíkri undir stjórnsýslu sveitarfélagsins og ákvæðum um að hér komi lágvöruverðsverslun.
Viðar H. Steinarsson."

Þannig er þetta bókað í fundargerð hreppsnefndar og ætla ég nú að fjalla um þennan gjörning í nokkrum orðum frá mínum bæjardyrum.
Kaupin á húseigninni Suðulandsvegi 1 er að mínu mati skynsamleg fjárfesting fyrir sveitarfélagið og hef ég bent á þennan möguleika oft áður sem vænlegan kost sem aðstöðu fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þetta var hins vegar ekki athugað að hálfu hreppsyfirvalda fyrr en boð bárust frá KB banka fyrir skömmu um að ónafngreindur aðili hyggðist bjóða í Suðurlandsveg 1.
Þá fyrst var gert tilboð í húsið af Rangárþingi ytra en því var ekki tekið en tilboði hins ónafngreinda var hins vegar tekið. Var þá talið að úti væri um málið. Svo var hins vegar ekki því boð bárust frá Kaupási hf um hvort Rangárþing ytra vildi ganga inn í forkaupsrétt sem það fyrirtæki ætti í húseigninni Suðurlandsvegur 1. Þarna var um að ræða að ganga inn í tilboð áðurnefnds ónafngreinds aðila með Kaupás sem millilið og með fylgdi hugmynd að leigusamningi við Kaupás hf á miðhæð og kjallara Suðurlandsvegar 1 til tíu ára.
Þetta varð úr og kaupir sveitarfélagið húseignina á rúmar sjötíu milljónir með áföllnum kostnaði vegna þess að Kaupás er milli liður. Sá leigusamningur sem fylgir þessum kaupum við Kaupás hf er til tíu ára og hefur Kaupás mest allan kjallara og miðhæð hússins undir sína starfsemi á þeim tíma. Inni í þessum samningi eru ákvæði um að Kaupás skuli setja hér upp Krónuverslun þegar "miðrými" verður opnað.(miðrými er fyrirhuguð tengibygging milli Suðurlandsvegar1 og Verkalýðshúss sem byggð verður af Rangárþingi ytra og húsfélagi Verkalýðshúss. Hvenær þetta húsnæði verður tilbúið er ekki vitað)
Þegar við undirskrift samnings mun húsaleiga Kaupáss hf lækka frá því sem nú er og þegar Krónubúð opnar mun húsaleiga falla niður í 2 ár og næstu þrjú ár þar á eftir verður leiga mjög lág. Eftir það mun leiga vera helmingur af því sem nú er út samningstímabilið alls 10 ár.
Auk þessa kveður samningurinn á um að Kaupás hf hafi forleigu og forkaupsrétt á umræddu leiguhúsnæði og einnig að ef gera þarf breytingar á leigushúnæðinu í kjallara þá borgar Rangárþing ytra það.
Hægt er að endurskoða samninginn eftir fimm ár frá undirritun hans.

Þannig er þetta nú í pottinn búið bæði gott og vont og vil ég nú greina þar á milli.
Fyrst það góða:
  1. Viðunandi húsnæði fyrir stjórnsýsluna á góðum stað.
  2. Kaupverð ásættanlegt á húsinu í heild.
  3. Hugmyndir um tengibyggingu.
  4. Að fá Krónuverslun.

Þá það slæma:

  1. Langur leigusamningur við Kaupás.
  2. Krónuverslun kemur ekki strax við undirritun.
  3. Niðurfelling og afsláttur af leigu er of mikill og til of langs tíma, nær í raun til alls leigutímabilsins þ.e. 10ára.
  4. Ákvæði um stórfellda eftirgjöf á leigu flokkast sem styrkur til einstaks fyrirtækis og er þar með fordæmisgefandi. (gæti í þessu tilfelli verið á bilinu 2-4 milljónir króna á ári eða yfir tuttugu milljónir á samningstímabilinu)
  5. Forkaups og forleiguréttur Kaupáss að mjög stórum hluta þeirrar húseignar sem keypt er.

Það sem mér finnst verst er að ekki skuli vera breytt í krónubúð nú þegar og síðan verður vandi hjá sveitarfélaginu að fylgjast með að Kaupás standi við ákvæði um Krónubúð þegar þar að kemur í svo langan samningstíma. (verðlagseftirlit Rangárþings ytra)

Svo er ein ágæt spurning sem athugull sveitungi kom með:

Hvað ef Bónus skyldi banka á dyrnar og biðja um sömu fyrirgreiðslu hjá Rangárþingi ytra EÐA ef Bónus mætti á Hvolsvöll upp á eigin reikning?????

Hvað þá!???

Góð spurning en svona er þetta í pottinn búið og nú getið þið sjálf vegið þetta og metið.

Er hér um að ræða meiriháttar ótvírætt og óumdeilt framfaramál eins og sigurvegari prófkjörs D-listans segir og ætlar að vinna kosningarnar með --EÐA er þessi samningur sýnd veiði en ekki gefin, veisla þar sem þú veist ekki hverjar veitingarnar verða eða hvað þær kosta.

Já vel á minnst hver er heildarkostnaðurinn við pakkann þegar upp er staðið?

Svarið er að sá kosningavíxill er óútfylltur.

En við segjum bara að þetta reddast og vonandi verður það svo.

Sæl að sinni Viðar.


Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++