24 maí 2006

 

Íhaldsúlfur í félagshyggjugæru


Komið þið sæl.
Í gær var haldinn sameiginlegur framboðsfundur í íþróttahúsinu á Hellu.
Það sem mér fannst merkilegast við þann fund var framganga íhaldsins.
Þeir komu í pontu hver af öðrum og lýstu því yfir að þeir væru tilbúnir!!
Þetta var mest áberandi hjá þremur efstu mönnum listans og fannst mér ótrúlegt að heyra menn, sem hafa verið í meirihluta í heilt kjörtímabil með hendur djúpt í vösum, tala um að þeir væru tilbúnir. Svo svöruðu þeir engum fyrirspurnum sem fram komu og fannst mér það til skammar.
Annað sem ég las úr þeirra uppfærslu á fundinum var að þeir ætla að láta Gísla Stefánsson draga vagninn og fannst mér Búkollumyndin í dag undirstrika það.
Með málefnin í molum eftir hörmulega frammistöðu á kjörtímabilinu ætla þeir að keyra í gegn um kosningarnar á vinsældum Gísla sem er í fimmta sæti, þess mæta drengs.
Ég setti fram eftirfarandi samanburð á rekstri Rangárþingi ytra og eystra á fundinum til að bregða ljósi á frammistöðu íhaldsins á kjörtímabilinu:

Ég valdi þessa aðferð vegna þess að umhverfi þessara sveitarfélaga er nánast eins. Það sem helst er ólíkt er að Rangárþing eystra hefur framkvæmt mjög mikið á kjörtímabilinu en Rangárþing ytra mjög lítið eins og sést á tölum við liðinn fjárfestingarhreyfingar.
Rangárþing ytra þarf hins vegar að fara í miklar framkvæmdir á næstunni en Rangárþing eystra ekki.

Samanburður á rekstri Rangárþings ytra og Rangárþings eystra.
Helstu niðurstöður beint úr ársreikningum sveitarfélaganna fyrir árið 2005 í milljónum króna : (Allt tal um rauntölur er moðreykur sem íhaldið var á fundinum að reyna að koma í augu kjósenda því allar eftirfarandi tölur eru innan sama árs og þurfa því ekki að uppreiknast)

-------------------Rangárþing eystra ---Rangárþing ytra

Rekstrartekjur --------777,6----------------------740,3
Rekstrargjöld ---------657,7 ----------------------639,7
Rekstrarafgangur -----85,7 ------------------------63,1
Fjárfestingar ----------161,0 ------------------------28,7
Heildarskuldir --------641,8 -----------------------635,0

Skuldir pr./ íbúa -----383þús.---------------------435þús.
Íbúafjöldi -------------1672-------------------------1459

Eins og þið sjáið er þetta að fullu samanburðarhæft þar sem um tölurnar eru frá sama ári og og af sömu liðum í ársreikningunum.
Og hvað segja þessar tölur okkur?
Jú þær segja okkur eftirfarandi:


  1. Að Rangárþing ytra hefur 20 milljónum minna í rekstrarafgang.
  2. Að þrátt fyrir miklar fjárfestingar hjá Rangárþingi eystra þá eru skuldir nánast þær sömu hjá báðum.
  3. Að skuldir á hvern íbúa eru verulega hærri í Rangárþingi ytra
  4. Að þessar tölur útskýra hvers vegna það fjölgar miklu hraðar í Rangárþingi eystra en hjá okkur þrátt fyrir að þeir eru fjær Reykjavíkursvæðinu.

Þessi samanburður finnst mér að sýni með skýrum hætti að fjárhags stjórnun Rangárþing ytra er verulega verri en í Rangárþingi eystra og er í raun falleinkun fyrir meirihluta íhaldsins hér.

Það þarf að gera miklu miklu betur við stjórn Rangárþings ytra og við verðum að breyta til.

Við þurfum að taka hendur úr vösum og:

Tækifærin eru mörg og við verðum að nýta þau og það þýðir ekki að vera bara tilbúinn fyrir kosningar.

Látið ekki íhalds úlfinn blekkja ykkur þó hann sletti yfir sig sauðargærunni rétt fyrir kosningar og láti eins og hann viti ekki um fortíð sína hér síðustu fjögur ár.

Við eigum betra skilið og vil ég því skora á íbúa Rangárþings ytra að gefa nú íhaldinu frí og kjósa K.

Kveðja Viðar.


Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++