04 júní 2006

 

Slæmir hlutir gerast líka hægt!! Klámvæðingin læðist yfir okkur.


Sæl nú.
Var að horfa á þátt á Stöð 2 þar sem fjallað var um brjóstastækkanir og fleiri lýta aðgerðir sem gerðar eru í miklu mæli nú orðið. Þarna er fyrst og fremst um að ræða konur sem eru fórnarlömb tísku og útlitsdýrkunar sem ríður húsum í sífellt auknu mæli í okkar úrkynjaða nútíma samfélagi. Þarna er einnig um að ræða hluta af þeirri klámvæðingu sem hefur hægt en örugglega verið að ná æ meiri tökum á hinum vestræna heimi og er Ísland þar alls ekki undanskilið nema síður væri og eru t.d.kynsvalls auglýsingar Flugleiða erlendis til merkis um það. Á mínum ungdómsárum þótti mjög djarft að vera í pínupilsum og láta glytta í nafla, en í dag má þakka fyrir að það sé pjatla fyrir geirvörtum og lífbeini á unglingsstúlkum. Slíkur klæðaburður, ef klæðaburð skal kalla, hefði fyrir fimmtíu árum aðeins tilheyrt vændi, þannig hefur þróunin orðið.

Þær aðgerðir sem sagt var frá í þættinum voru bæði óhugnalegar og hættulegar fyrir þá sem gangast undir þær eins og dæmin sanna. Og maður spyr sig hvar eru bremsurnar? Hvers vegna eru ekki til strangar siða og faglegar reglur um slíkar aðgerðir sem reisa skorður við hömlulausri fjölgun þeirra í því eina augnamiði að þjóna einhverri "ímynd" sem sprottin er af brengluðum og óheilbrigðum hugsunargangi.

Það verða allir að berjast gegn þessari þróun af alefli, nota hvert tækifæri, hverja predikun til að berja á þessum vágesti. Við heyrum oft sagt "að góðir hlutir gerist hægt"!! Rétt eins og allt það sem gerist rólega sé gott. Nú hefur klámvæðingin verið að ná æ meiri tökum á okkar samfélagi í langan tíma og mér finnst það EKKI gott og vil hvetja allt sómakært og rétthugsandi fólk til að rísa upp gegn þessari óværu og bjarga með því menningu okkar og þeim fjölmörgu einstaklingum sem eru og verða fórnarlömb þessa ósóma.
Það er ekki of seint að snúa af leið og það er mikil ábyrgð í því falin að láta þessa öfugþróun ganga yfir á þess að andæfa á nokkurn hátt.
Stöð 2 á þakkir fyrir að hefja þessa umræðu og nú er það okkar að henda orðið á lofti og snúast til varnar af fullum þunga. "Orð eru til alls fyrst" en athafnir verða að fylgja á eftir til að gefa orðunum styrk og merkingu.
Sæl að sinni Viðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++