13 ágúst 2006

 

"Lítillátur ljúfur og kátur"

Komið þið sæl eftir langt sumarfrí frá skrifum, en nú skal slegið í.

Fyrirsögn þessa pistils er með vísan í stöku úr heilræðavísum séra Hallgríms Péturssonar sem hljóðar svo:

Lítillátur, ljúfur og kátur
leik þér ei úr máta.
Varastu spjátur, hæðni, hlátur
heimskir menn svo láta.

Mér datt í hug þessi staka, og þá sérstaklega fyrsta ljóðlínan, þegar fréttir bárust nýverið af niðurskurði ríkisstjórnarinnar á áætluðum samgönguframkvæmdum til varnar verðbólgu í landinu.
Strax barst mikið harmakvein vegna þessara aðgerða frá vesturlandi, vestfjörðum, norðurlandi og austurlandi - en frá Suðurlandi heyrðist hvorki hósti né stuna!!

Ástæðu þessarar þagnar held ég að leita megi djúpt í sálarkyrnu okkar Sunnlendinga og er sennilega komið inn í genin og er þar með orðið okkur í blóð borið.
Sumir vilja flokka þetta undir lítillæti eins og segir í erindinu hér að ofan, einhverskonar hógværð, en aðrir vilja kalla fyrirbærið þrælslund. Ekki ætla ég mér þá dul að dæma hvort þetta sé dyggð eða löstur en vil meina að stundum sé þessi "eiginleiki" okkur Sunnlendingum til trafala og þá ekki síst þegar kemur að því að við þurfum að olboga okkur að hinum sameiginlega sjóði allra landsmanna ríkissjóði.

Við Sunnlendingar erum nefnilega að bera skarðan hlut frá borði hvað varðar úthlutun fjár úr ríkissjóði og þá sérstaklega hvað fé til samgöngumála varðar. Þetta hefur marg oft komið fram í ítarlegri og faglega unninni úttekt samgöngunefndar SASS á útdeililingu fjár til samgöngumála á landsvísu. En þrátt fyrir að þetta hafi legið fyrir nú um nokkurt skeið þá hefur það einungis haft þau áhrif á þá sem afgreiða samgönguáætlun á Alþingi að Suðurlandi er ætlaður sífellt smærri sneið af kökunni og verður að teljast undarlegt að þingmenn kjördæmisins skuli láta það líðast.
Að öðru:
Það var mikið í fréttum í liðinni viku þegar Sjávarútvegsráðherranum varð það á að snúa Lunda úr hálsliðnum án þess að hafa til þess tilskilið leyfi.
Nú ætla ég ekki að fara að spá því að Einar K Guðfinnson verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins og því síður ætla ég að yrkja stöku um Lundadrápið hans en það rifjist upp fyrir mér að hafa lesið um sambærilegt atvik hjá háttsettum embættismanni sem síðar varð formaður flokks og enn síðar forsætisráðherra landsins.
Þetta var í árdaga íslenska lýðveldisins þegar Hermann Jónasson drap friðaða Æðarkollu þá starfandi lögreglustjóri í Reykjavík. Um þetta atvik var ort þegar Hermann var nokkru síðar kosinn formaður Framsóknarflokksins:

Íslands lítill ábate
ætla ég sé að lýðræðe.
Komin er glópska og hvinnska á fé
og kollubani í hásæte.

Kannski að Einar Kristinn verði einhverntíma formaður Sjallana hver veit?

Sæl að sinni, Viðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++