17 febrúar 2006

 

Hellisheiði.

Komið þið sæl.
Var að koma af fundi um vegabætur á Hellisheiði. Góður fundur og þarft framtak að halda hann af SASS. Samgönguráðherran hélt tölu og svaraði fyrirspurnum og eftir því hvernig hann talaði í kvöld þá er ekki von á tvöföldum á veginum milli Selfoss og Reykjavíkur næsta áratuginn.
Ráðherrann talaði allan tímann um 2+1 í áföngum á næstu árum.
Ég segi, og held að ég tali þar fyrir munn allflestra sunnlendinga, við viljum ekki 2+1 við viljum tvöföldun, tvær aðskildar akgreinar í hvora átt og ekki neitt múður um annað. Fyrir því hafa verið borin á borð næg rök af hálfu SASS og fleiri aðila sem hafa verið að berjast fyrir vegabótum á Hellisheiði. Það liggur t.d. fyrir að umferðarþungi og slysatíðni á Hellisheiði nú er um það bil sú sama og var á Reykjanesbraut þegar ákveðið var að tvöfalda hana. Það þarf ekki frekari vitna við nú þarf að grípa til aðgerða og það sem fyrst EÐA á að bíða eftir jafn hörmulegu atviki á Hellisheiði og varð á Reykjanesbraut og sem varð til þess að menn hófust handa við tvöföldun þar.
Vonandi þarf ekki að koma til þess, en til þess að ráðherrann og yfirmenn vegagerðarinnar sjái ljósið þá VERÐA þingmenn okkar allir sem einn að tala svo skiljist og þá ekki síst þeir sem eru í stjórnarliðinu nú. Það vekur auðvitað furðu að ekki skuli hafa náðs samtaða allra þingmanna kjördæmisins um að styðja þingsályktun um að tvöfalda Hellisheið á allra næstu árum og ég get með engu móti skilið afstöðu stjórnarþingmanna að vilja ekki standa að málinu sameiginlega.
Meira um fundinn seinna en nú segi ég góða nótt.
Viðar.
ES. Endilega gefið "Comment" það er mjög gott að fá viðbrögð og skoðanir.

Comments:
Þetta er alveg týpískt íslendingaviðhorf að ætla bjarga hlutunum í nokkur ár í staðinn fyrir að ráðast beint í almennilegar aðgerðir. Þannig endar með því að hlutirnir eru farnir að kosta helmingi meira en þeir þyrftu. Einföld hellisheiði er of lítil og 2+1 vegur er það líka, það er bara tvöföldun eða ekkert.
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++